Árbók Félags útvarpsnotenda - 01.01.1933, Side 32

Árbók Félags útvarpsnotenda - 01.01.1933, Side 32
30 úTVARPSÁRBóK víðsýni strjálbýllar þjóðar. En aukið viðsýni skapar nýja möguleika, eykur þrótt og eflir hvöt til fram- taks. Um þá hlið væri vert að rita, en að þessu sinm er ekki tækifæri til þess. En það er víst að fái málefnið þá meðferð, sem því er samboðin, mun það sýna sig, að það á ekki lítinn þátt í því að örfa æðaslag þjóðlífsins. II. Takmark rkisstjórnarinnar í útvarpsmálinu verður að vera það, að útvarpið komist inn á hvert einasta heimili í landinu, án tillit til gjaldþols notenda. Allir landsmenn eiga sömu rjettlætiskröfu til afnota þess. Hinir efnaminni þarfnast útvarpsins fremur en hinir efnuðu, er hafa ótal tækifæri til að auðga líf sitt — og þeim verður að hjálpa til þess að hafa þess not. Hjer á jeg við afnotagjaldið kr. 30.00. sem jeg tel altof hátt og alls ekki nauðsynlegt. Skal jeg nú skýra það álit mitt, jafnframt því sem jeg leyfi mjer ao treysta á skilning alþjóðar í þessu sjerstaka menn- ingarmáli, og benda á.heppilegri og langtum æski- legri leið til tekna og aukinnar útbreiðslu útvarpsins. Víðast hjer í álfu eru tekin afnotagjöld af útvarps- notendum. Alment afgjald fyrir viðtæki eru 15—25 krónur árlega. Þó eru undantekningar að ekkert gjald er tekið í Frakklandi, þar sem gjaldið er aðeins einn franki í eitt skifti fyrir öll, um leið og tækið er keypt. Eins og kunnugt er þá hefir afnotagjaldið hjer hjá okkur Islendingum verið ákveðið 30 krónur ár- lega. Mun ráðuneytið ekki hafa sjeð sjer fært að hafa það lægra með tilliti til hins mikla reksturskostnað-

x

Árbók Félags útvarpsnotenda

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Félags útvarpsnotenda
https://timarit.is/publication/618

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.