Árbók Félags útvarpsnotenda - 01.01.1933, Page 36
34
úTVAEPSÁRBóK
óhægt með að sækja slíkan fund, gætu falið öðrum að
koma tillögum sínum og áhugamálum á framfæri.
Umræðunum á slíkum fundi mætti varpa út, svo að
notendur, sem ekki gætu sótt hann, gætu fylgst
með því sem þar gerist, og á þann hátt tekið að
nokkru leyti þátt í honum.
Ályktanir, sem slíkur fundur gerði, myndu áreið-
anlega hafa meiri áhrif hjá stjórn útvarpsins og
ríkistjórninni, heldur en mál sem einstakir menn eru
að skrifa um eða bera fram.
Á slíkum fundi gætu menn borið fram óánægju
sína og ef til vill fengið skýringar á ýmsu. Pað er
margt, sem mönnum leikur hugur á að vita, en vita
ekki hvar þeir eiga að spyrja, nema ef málefnið
berst í tal manna á milli. Mörgum leikur t. d. hug-
ur á að vita, hvernig stendur á því, að útvarps-
stöðin ekki reynist eins og lofað var. Pví var t. d.
lofað, að hún skyldi heyrast á »krystal«-tæki í alt
að 120 km. fjarlægð; en það er víst ekkert leyndar-
mál, að það loforð hefir verið svikið. Pykir víst gott,
ef hún heyrist upp í Borgarfjörð á slík tæki. Því
var ennfremur lofað (ekki eing'öngu okkur hjer
heima, heldur einnig veðurfræðingum um mest-alla
Norðurálfu), að hún skyldi geta senl: veðurskeytin
daglega tll Englands að minsta kosti, og jafnvel til
flestra landa á meginlandinu. Petta hefir einnig ver-
ið svikið, og verst er, að úr því hafa orðið »alþjóða-
svik«, auk þess, sem stöðin þar missir 30 þúsund
króna tekjur á ári, sem búið var að lofa henni fyrir
þetta, frá útlöndum.
Áætlað var, að stöðin kostaði um 650 þúsund krón-
ur með öllu, en samkvæmt því sem opinbert er um