Árbók Félags útvarpsnotenda - 01.01.1933, Síða 41
úTVARPSÁRBóK
39
Truílanalaus útvarpsmóttaka.
I stórborgum erlendis, þar sem mikið er af raf-
magnsvjelum, í notkun allan sólarhringinn, er út-
varpsmóttaka oft erfiðleikum bundin, sökum vjela-
truflana. Við Reykvíkingar þekkjum þetta svo vel
af eigin reynslu, og getum við líklega skákað flest-
um öðrum á því sviði.
Nú er það svo, að hversu góðar dagskrár sem
heimastöðvarnar hafa, langar menn þó ávalt til að
heyra frá öðrum löndum, sumpart til þess að heyra
hvernig það sje »hjá hinum« og sumpart til tilbreyt-
ingar. 1 þessu skyni kaupa margir sjer fullkomn-
ari og dýrari tæki, en hafa eftir á rekið sig á þann
sorglega sannleika, að gagnið og ánægjan hafa ekki
orðið eftir útgjöldunum.
Eins og kunnugt er, hefir mikið verið leitast við
að finna lausn á truflanavandræðunum, og þótt mik-
ið hafi víða orðið ágengt í þeim efnum, vantar þó
mikið á. Víða erlendis hafa nú risið upp fjelög með
því markmiði, að sjá mönnum fyrir truflanalausu
útvarpi frá öðrum löndum. Er því þannig hagað, að á
stað þar sem ekki eru rafmagnstruflanir, er sett upp
móttökustöð, með vönduðum og afkastamiklum mót-
tökutækjum. Er þar tekið við útvarpi frá nokkrum
þektum stöðvum og síðan sent eftir sjerstökum síma-
línum til notendanna, sem með þessu móti geta íengið
hreint, truflanalaust útvarp, sem ánægja er að hlusta
á, og geta menn venjulega valið á milli minst fjögra
stöðva hvert kvöld. Ýmsar aðferðir eru hafðar við
dreifingu útvarpsins til notenda, en þessar eru helst-