Árbók Félags útvarpsnotenda - 01.01.1933, Page 43
ÚTVARPSARBóK
41
Hversu margir lampar?
Fyrir nokkrum árum var hægt að dæma nokkurn-
veginn um næmni og afkast móttökutækja eftir
lampafjöldanum í þeim. Þá voru hlutverk lampanna
ekki eins margþætt og nú, heldur aðeins tvö, að
magna og breyta. Að vísu þektust tvenskonar magn-
aralampar, þ. e. hátíðni magnarar og lágtíðni magn-
arar, og voru þeir fyrnefndu til þess áð magna út-
varpsöldurnar áður en þeim var breytt, en hinir
síðarnefndu mögnuðu þær eftir breytinguna. Hitt
hlutverkið var að breyta útvarpsöldunum þannig,
að aðgreina hljóðöldurnar frá radioöldunum, en þeim
er, svo sem kunnugt er, blandað saman í senditækj-
unum. Þegar nefnt var 4-lampa tæki, var venju-lega
óhætt að telja víst, að átt væri við tæki með ein-
um bátíðni-magnaralampa, gripillampa og tveimur
lágtíðni-magnaralömpum. Gripillampi er sá lampi
nefndur, er breytir öldunum, þ. e. aðgreinir hljóð-
öldurnar frá radioöldunum. Seinna, þegar »Pentóð-
urnar« komu á markaðinn, breyttist þetta svo, að
venjulega voru 4-lampa tæki tveir hátíðni-lampar,
einn gripillampi og einn lágtíðni-lampi (»Pentóða«).
Þessi tæki voru mun næmari en fyrirrennarar þeirra.
Nú eru hlutverk lampanna í útvarpstækjunum
•orðin svo mörg, að ómögulegt er að dæma um næmi
tækisins eða afkast eftir lampafjöldanum. Er því
viðbúið, að bráðlega verði farið að nota annan mæli-
kvarða á næmni og afkast tækjanna. Skal hjer drep-
íð lauslega á hvernig hann muni verða. Ljósvaka-
<öldum þeim, er flytja útvarpið, fylgir tvennskonar