Árbók Félags útvarpsnotenda - 01.01.1933, Blaðsíða 46
44
úTVARPSARBóK
Meðferð rafgeyma.
Víða hjer á landi verða menn enn að notast við
rafgeyma við útvarpstæki sín, og kvarta margir und-
an því, að þeir vilji endast illa, Er það eigi óeðli-
legt, því að rafgeymir er tæki, sem þarf mjög ná-
kvæma meðferð og góða hirðingu, annars skemm-
ist hann fljótlega. Síðan útvarpið kom til sögunn-
ar, hafa verið gerðar margar endurbætur á rafgeym-
unum, svo að nú er orðið tiltölulega einfalt með þá
að fara. Ef menn fylgja eftirfarandi 10 boðorðum
vel, ættu geymar þeirra að endast betur en þeir nú
gera alment.
1. Látið geymirinn hlaðast vel í fyrsta sinn.
2. Látið nýjan geymi hafa nóg að starfa, þ. e.
notið hann mikið.
3. Hlaðið geymirinn mátulega - ekki of ört.
4. Látið ekki spennu 4-volta geymis fara niður
fyrir 3.8 volt, og látið ekki sýruþungann fara
i niður fyrir 1.200.
5. Látið geymirinn aldrei standa óhlaðinn.
6. Sje geymirinn ekki notaður um tíma, þá reyn-
ið samt að hlaða hann mánaðarlega.
7. Blýsalli sá, er sest á botn kersins, má ^aldrei
verða svo mikiil, að hann nái upp í plöturn-
ar. Fyr verður að ná honum upp með sog-
pípu, ef unt er.
8. Hafið ávalt nógan lög á geyminu.m, svo að
fljóti vel yfir plöturnar. Bætið eimuðu vatni
á eftir þörfum.
9. Gætið ítrasta hreinlætis með kerin og berið