Árbók Félags útvarpsnotenda - 01.01.1933, Blaðsíða 49
ÚTVARPSÁRBÓK
47
er þyngri, eða 1.300. C sýnir, hvernig lagarmælirinn
er notaður; honum er stungið niður í kerið, gúm-
boltinn kreistur og lögurinn látinn sogast upp í gler-
pípuna.
Svona mæli, og eins 6 volta spennumæli (voltmet-
er) þyrftu allir að eiga, og nota\, sem eiga rafgeyma;
þeir kosta ekki mikið, en geta aukið endingu raf-
geymisins margfalt frá því sem nú er.
Loks sýnir D-myndin, hvernig hægt er að sjá,
hversu hátt lögurinn stendur í kerinu. Glerpípu er
stungið niður í kerið, þangað til hún nemur við plötu-
rendurnar. Er þá lokað fyrir efra endaop pípunnar,
með fingri, svo að lögurinn helst í pípunni, þegar hún
er tekin 'upp úr kerinu.
LYAC-rafgeymar
fyrir bíla o. fl.
liafa farið sigurför um Norðurlönd og
eru nú að leggja ísland undir sig.
Fyrirliggjandi hjá
OTTO B. ARN AR
Ingólfshvoli Reykjavík Sími 2799
Reynið!