Árbók Félags útvarpsnotenda - 01.01.1933, Qupperneq 50
48
úTVARPSÁRBóK
Nýju útvarpstækin,
Á hverju hausti koma, svo sem kunnugt er, nýjar
gerðir af útvarpstækjum frá verksmiðjunum. Er
stunaum aðeins um lítilfjörlegar endurbætur að
ræða, en oft koma stórkostlegar breytingar fram.
1 þetta sinn er um margar og miklar breytingar að
ræða, og þykir ekki ótilhlýðilegt að fara hjer um
þær nokkrum orðum, þó að sumar þeirra hafi kom-
ið fram hjá einstaka verksmiðjum síðastliðið ár.
Það sem sjerstaklega vekur athygli er, hversu mjög
»super-heterodyne«-tækin eru að ryðja sjer til rúms
nú. Fjöldinn allur af verksmiðjum koma nú með tæki
þessarar gerðar á markaðinn. Þó eru einstaka þekt-
ar verksmiðjur sem eru undantekning frá þessu og
halda öðrum »princip«um fram. Má þar nefna Phil-
ips-verksmiðjurnar, sem halda fast við »super-induc-
tance«-gerð sína. Áður fyr þektust ekki tæki eftir
»Super-heterodyne«-gerðinni með færri lömpum en
6 — nú eru gerð alt niður í 3 lampa »super«-tæki.
1 flestum tækjunum eru nýju lamparnir alment
notaðir, svo sem hátíðni »Pentóður«, »Bínóður« og
»Hexóður«. Þau hafa mörg.sjálfvirka stillingu á hljóð-
magninu, »Fading«-uppbót, og sjálfvirkan blæstilli,
og nú er ekki nefnt annað en »dynamiskir« hátalarar.
I fyrra haust kom ein verksmiðjan með tveggja
lampa tæki með innbygðum »dynamiskum« hátalara.
Nú eru flestar — ef ekki allar — verksmiðjurnar
með slík tæki.