Hlín - 01.01.1942, Blaðsíða 163
ÍSLENDINGAR!
Gerist f jelagar í hinum nýstofnuðu Þjóðræknisf jelög-
um í Reykjavík og á Akureyri. Markmið þeirra er aukin
samvinna við landa okkar vestan hafs.
Lestrarfjelög! Kaupið þær bækur og þau blöð, sem
landar vestra gefa út:
Vikublöðin „Lögberg“ og „Heimskringla“ eru gefin
út í Winnipeg. — Þessi blöð eru aðaltengiliðurinn milli
íslendinganna í hinni víðlendu Vesturálfu. — Það er
lífsskilyrði fyrir íslenka tungu vestra, að blöðin geti
haldið áfram að starfa. — Bæði blöðin hafa runnið
hálfrar aldar skeið.
Tímarit Þjóðræknisfjelagsins er nú yfir 20 ára gam-
alt. — Þeir, sem gerast fjelagar í Þjóðræknisfjelagi ís-
lendinga í Vesturheimi, og f jelagsdeildunum hjer heima,
fá ritið fyrir 5.00 kr.
Almanak Ólafs Thorgeirssonar, sem hefur verið gefið
út um 50 ár í Winnipeg, flytur árlega frjettir af löndum
vestra og hefur ýmsan annan fróðleik að geyma.
„Árdís“, ársrit bandalags lúterskra kvenna, gefið út í
Winnipeg. 9 hefti eru út komin.
„Sameiningirí1, tímarit lútersku kirkjunnar vestan
bafs. Hefur verið gefið út yfir 50 ár.
Saga íslendinga í Vesturheimi. Fyrsta bindi þessa
rits kom út á s. 1. hausti, 350 bls. að stærð. — Gerist
áskrifendur, það tryggir framhald útkomunnar.
Hermannábókin, gefin út af kvenfjelagi í Winnipeg
eftir heimsstyrjöldina, þar eru skráð nöfn þeirra ís-
lendinga, sem tóku þátt í stríðinu 1914—18 (með
myndum). — Allar þessar bækur má fá með því að
snúa sjer til BÓKAVERSLUNAR „EDDU“, Akureyri
og BÓKAVERSLUNAR KRISTJÁNS KRISTJÁNS-
SONAR, Hafnarstr. 19, Reykjavík. — Þar má líka
greiða andvirði bókanna í íslenskum peningum.
íslendingar! Með því að kaupa þau blöð og þær bækur, sem
landar okkar vestan hafs gefa út, styðjið þjer að sigursælli baráttu
þeirra að viðhaldi islenskrar tungu. Viðhaldið sambandinu, það
verður öllum íslendingum, beggja megin hafsins, til blessunar.