Melkorka - 01.07.1950, Blaðsíða 6
minningar- og dánargjöfum . .. Minninga-
bókin skal geymd á tryggum stað t. d. í
handritasafni Landsbókasafnsins.“
Á' þennan hátt er reynt að tryggja það
svo sem kostur er á, að geymd sé minning
þeirra, sem gjafir eru gefnar um og er sjóð-
urinn á jrann hátt órjúfanlega tengdur for-
tíðinni, niinningu hins liðna. En minning-
in á svo að verða til þess að tryggja fram-
tíðina, láta framtíðarvonirnar rætast, ef
kostur er. Hlýtur sjóður jressi því að minna
á orð Einars skálds Benediktssonar, er liann
kveður í Aldamótaljóðum sínum: „Að for-
tíð skal hyggja, ef frumlegt skal byggja.“
Því verður varla fram hjá því gengið, þegar
sjóðs þessa er minnzt, að framtíðin verður
jafnan að standa í tengslum við fortíðina,
ef vel á að fara.
Um tilgang sjóðsins er farið svofelldum
orðum í skipulagsskránni:
„Tilgangur sjóðsins er að vinna að menn-
ingarmálum kvenna:
a. með því að styðja konur til framhalds-
náms við æðri menntastofnanir, hérlendar
og erlendar, með náms- og ferðastyrkjum.
Ef ástæða þykir til, svo sem sérstakir Iiæfi-
leikar og efnaskortur, má einnig styrkja
stúlkur til byrjunarnáms t. d. í mennta-
skóla.
b. með jrví að styðja konur til framhalds-
rannsókna að loknu námi og til náms og
ferðalaga til undirbúnings jijóðfélagslegum
störfum og til sérnáms í ýmsum greinum og
annarra æðri mennta,
c. með því að veita konum styrk ti| rit-
starfa eða verðlauna ritgerðir, einkum um
jjjóðfélagsmál, er varða áhugamál kvenna.
Þó skulu námsstyrkir sitja í fyrirrúmi með-
an sjóðurinn er að vaxa.
Komi þeir tímar, að konur og karlar fái
sömu laun fyrir sömu vinnu og 'sömu að-
stæður til menntunar, efnalega, lagalega og
samkvæmt almenningsáliti, þá skulu bæði
kynin liafa jafnan rétt til styrkveitinga úr
sjóði þessum.“
Um stjórn sjóðsins er svo fyrir mælt í
skipulagsskránni, að á Landsfundi K. R. F.
í. skuli kosin 5 kvenna stjórn, er hafi á
hendi allt það er við kemur úthlutun og
innborgun til sjóðsins. Leggist K. R. F. I.
niður án þess að annar tilsvarandi félags-
skapur komi í þess stað, er þess óskað, að
sameinað Alþingi kjósi sjóðstjórnina, sem
þó skal ávallt skipuð konum.
Einstök atriði skipulagsskrárinnar munu
svo ekki frekar verða rakin hér. Hins vegar
mun í stórum dráttum verða rakin starf-
semi sjóðsins þau 5 ár, sem liðin eru frá
staðfestingu skipulagsskrárinnar.
Aðaltekjur sjóðsins hafa verið minning-
argjafir. Hafa nú verið gefnar minningar-
gjafir um rúmlega fjörutíu merkar konur
og auk þess 1000 krónur til minningar um
Héðin Valdimarsson. Stærsta minningar-
gjöf frá einum manni er 10.000 króna gjöf
Tlior jensen, en langflestar gjafirnar eru
500—1000 krónur, séu þær aðeins frá einum
manni eða félagi. Hins vegar hafa nokkrar
gjafir orðið hærri, ef margir vinir og vel-
unnarar hinnar framliðnu hafa slegið sam-
an. Nokkrar gjalir utan minningargjafa
liafa og borizt og er stærst þeirra gjöf frá
Byggingafélagi alþýðu, 10.000 krónur að
upphæð.
Tvenns konar starfsemi hefur verið rek-
in, önnur að tillilutun sjóðstjórnarinnar,
hin af Kvenréttindafélagi íslands, en það
er sala minningarspjalda og merkja. Fer
merkjasalan fram á fæðingardag frú Bríetar
Bjarnhéðinsdóttur, 27. september. Hafa nú
hin síðari ár tekjur af þessari starfsemi
numið rúml. 20.000 krónum, og hefur fulL
ur helmingur Jress safnazt utan Reykjavík-
ur. Svo vel hafa konur úti um land brugðizt
við Jressu. Minningarspjöldin eru einkum
seld í Reykjavík, jDÓtt útsölustaðir séu einn-
ig á Akureyri. Vitanlega gætu konur, hvar
sem er á landinu fengið spjöld, ef þær
byggjust við, að einhverjir í sínu byggðar-
lagi vildu nota þau.
Stjórn M. M. K. gekkst fyrir jrví að fá út
gefið ýmislegt af jrví, er Laufey heitin
32
MELKORKA