Melkorka - 01.07.1950, Blaðsíða 26

Melkorka - 01.07.1950, Blaðsíða 26
/---------------------------------------N MELKORKA kemur út þrisvar á ári. Verð árgangsins fyrir áskrifendur er 20 krónur. f lausasölu kostar hvert hefti 8 krónur. Gjalddagi er fyrir 1. okt. ár hvert. Öll bréfaviðskipti varðandi innheimtu og a£- greiðslu til áskrifenda og útsölumanna utan Reykjavíkur annast Svafa Þórleifsdóttir, Hjallavegi 14 Reykjavík. Afgreiðsla fyrir Reykjavík og nágrenni er í Bókabúð Máls og menningar, Laugavegi 19. Nokkur eintök af fyrri árgöngum ritsins eru enn fáanleg. PRENTSMIÐJAN HÓLAR H-F V_______________________________________/ um erlendum fyrirmyndum og stundum sauma þær Heklugos og fossaföll, sem varla er hægt að segja að njóti sín í útsaum. Marg- ar þessar stúlkur sauma prýðilega vel og njóta góðrar tilsagnar hvað handbragði við- víkur, en ég held að þær mundu bera meira úr býtum, ef önnur viðfangsefni yrðu fyrir valinu. Margar nútímakonur virðast hafa tekið hið góðkunna gamanbréf listaskáldsins góða, Jónasar Hallgrímssonar, að einhverju leyti til fyrirmyndar um búning sinn og reynt að komast sem næst því sem drottn- ingin á Englandi var búin þegar hún fór í orlofsferðina til hans séra Filippusar hinum megin við sundið. „Hún var með gullskó, í silfursokkum og silfurbryddu gullpilsi, með gullsvuntu, og að ofan í gulllagðri silf- urtreyju, með silfurhúfu og gullskúf í.“ Skyldi Jónasi nokkurntíma hafa dottið í hug að hann ætti eftir að verða tízkufröm- uður? En það er von að þetta sé svona. Dýrindis kjólaefni hafa verið flutt til lands- ins, þó lítið sé til af öllu nú orðið í verzlun- um, það sem þurfti til íslenzka búningsins hefur orðið litundan. Ég efa það ekki að íslenzku klæðaverksmiðjurnar gætu ofið handa okkur dýra dúka „eins og ormavef, léttari en fis og þó hlýja“, en silki eigum við ekki í landinu. Á meðan flutt eru til landsins efni í fína kjóla, væri ekki úr vegi, að konurnar, sem bera uppi hróður þjóð- búningsins, fengju sparisvuntur og slifsi úr góða gamla silkinu, sem entist urn aldur og ævi. Einmitt sú tegund af silki er notuð til þjóðbúninga annars staðar í Evrópu. Tízk- an eyðileggur ekki um aldur fram efnið, sem notað er í þjóðbúninga. Sú gjaldeyris- eyðsla mun aldrei verða þungur baggi á þjóðinni. Það væri livöt til að nota þjóðbúninginn, ef liéraðsfélög auglýstu, þegar þau tilkynna mót sxn, að óskað væri að menn kæmu í dökkum fötum og þjóðbúningi í staðinn fyrir samkvæmisfötum og síðum kjólum. Nú eru liðnir tæpir úr öld síðan eini listmálari Jress tíma, Sigurður Guðmunds- son, konr konunum til hjálpar, sem voru óánægðar með búninginn eins og hann var þá og óskuðu að breyta svolítið til. Hvort sú breyting var til bóta, er smekksatriði, en hugsazt gæti að það sé einmitt heppilegt nú, að til eru fleiri gerðir af þjóðbúningn- um, ef takast mætti að vekja áhuga fyrir notkun hans að nýju. Á síðustu tírnum hef- ur komið fram í ræðu og riti ýmislegt, sem bendir til að konur séu farnar að gefa því gaurn að þjóðbúningurinn standi á fallanda fæti. Flestar viljum við varðveita hann, jafn- vel þó við notum liann ekki sjálfar, en það er eins og oft á sér stað, við viljum að hinar konurnar geri það, en ef til vill bætast fleiri í hópinn, ef ekki verður áfram svona mikl- um erfiðleikum bundið að fá til hans nauð- synleg efni. Nú eigum við marga listamenn bæði karla og konur. Vonandi eru þau ekki öll sammála um að dæma þjóðbúning okk- ar dauðan og ómerkan, heldur leggi þau til málanna hvernig megi bæta hann sem bezt. Þökk sé konum þeim, sem enn bera íslenzka búninginn, því meðan liann enn er til, á hann sér viðreisnar von. 52 MELKORKA

x

Melkorka

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Melkorka
https://timarit.is/publication/625

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.