Melkorka - 01.07.1950, Blaðsíða 11

Melkorka - 01.07.1950, Blaðsíða 11
félagskvenna og fengnum „pólitískum“ réttindum, sem hefðu átt að gera konurn kleift að vera mikils ráðandi á Alþingi. Og þrátt fyrir skelegga baráttu verkalýðssam- takanna, sem liafa haft „sömu laun fyrir sömu vinnu“, sem eitt sitt aðalstefnumál frá upphafi vega. Alþýðusambandið er 34 ára. Það er lang- ur starfsferill en þó er jafnréttið ekki meira í launamálum en þegar er frá skýrt. Enginn taki orð mín svo að ég vilji kasta rýrð á alla þessa starfsemi eða vanmeta Jrær kjarabætur, sem fengizt hafa, en spurningin er: Hvers vegna höfum við ekki þegar náð settu rnarki með fulltingi sanrtaka okkar, verkalýðssamtakanna, og ennfremur fyrir atbeina hinna „pólitísku" réttinda. Mér er ekki grunlaust unr að við misnot- um okkar pólitísku réttindi og vil ég eink- um beina orðum mínum til lrinna vinnandi stétta. Það er nreir en full ástæða til að athuga vel allar kringumstæður þegar við göngum að kjörborði og greiðum atkvæði. En hver skilyrði eru til að við getum með fullri ábyrgðartilfinningu valið rétt milli stjórn- nrálaflokka? Það er aðeins ein leið, en hún krefur þekkingar. í fyrsta lagi, hvaða hag- kerfi mun bezt lrenta okkar þjóðarbúskap, og í öðru lagi, lrver eru sjónarmið, stefnur og takmörk lrinna ýmsu flokka og lrver er reyndin nreð að þeir framfylgi sínum stefnu- skrám. Þetta er sú þekking, sem segja nrætti um: „Eitt er nauðsynlegt". Sú fræðsla, sem fullnaðarpróf úr barnaskólunr ætti að mið- ast við og í síðasta lagi ætti próf í slikum fræðunr að vera óumflýjanlegt áður en kosningarétturinn er fenginn lrlutaðeigandi. Hver skilyrði eru svo til fræðslu og þekk- ingar í jafn lífsnauðsynlegunr fræðum? Reyndin mun vera að útgefendur flokks- blaðanna telji það starfssvið sitt, enda lrella þau yfir okkur fullyrðingum sí og æ, en einkunr fyrir kosningar; sömuleiðis býst ég við að frambjóðendur fyrir kosningar telji sig útvalda fræðara. Því er ákaft haldið að okkur lrvert hnoss lrið svonefnda ritfrelsi sé og þetta frelsi er notað þannig að það er haugað í háttvirta kjósendur blaðakosti, senr inniheldur í öll- um atriðum ósvífnustu lygar og blekkingar, sem samvizkulaus illmenni geta saman sett ásanrt loforðum, sem fyrirfram má vita að verða svikin þar senr þau komast því aðeins til franrkvæmda að prangað verði og prúttað unr framgang þeirra flokka á milli, að ó- gleynrdum loforðum, sem fyrirfram er á- kveðið að svíkja eins og t. d. fiugvallarsamn- ingurinn. Á sama hátt er hið svonefnda mál- frelsi rómað mjög en fræðslan er sú að þar eru ítrekuð blaðaskrifin og þyrlað upp sem mestunr blekkingum og leitast við að gera kjósendunr sem allra torveldast að beita dónrgreind sinni. Áhrif þessara starfsaðferða eru áþreifan- leg. Fjöldi fólks er haldið „pólitískri ógleði". Það lrefur ógeð á að koma nálægt nokkru, senr nefnist „pólitík“ og lítur á það senr pest, senr ber að forðast. Ennfremur virðist nrér beinlínis vera rekinn áróður fyr- ir því að nrenn séu „ópólitískir". Kvenrétt- indafélagið telur sig geta náð tilgangi sín- unr og takmarki unr fullt jafnrétti án “póli- tískra" sjónarmiða. Alþýðusambandið hyggst einnig framfylgja sínunr stefnumál- unr og byggja réttlátt þjóðfélag án pólitískra sjónarmiða; ég tel það alveg útilokað í báð- unr tilfellum. Það fæst því aðeins fullt jafn- rétti, raunlræfar umbætur, réttlátt jrjóðfélag að liver einstaklingur geri sér ljóst, að liann er lrluti af heildinni, ábyrgur þjóðfélags- þegn. Við megum ekki ganga þess dulin að okk- ur er lagt vopn í liönd þar senr kosingarrétt- urinn er, en við getnm nreð skeytingarleysi, ábyrgðarleýsi og þekkingarleysi misnotað það og beint því gegn sjálfunr okkur og lífs- kjörum okkar. Að öllu athuguðu er það tvímælalaus skylda hvers kjósanda að vera „pólitískur“. melkorka 37

x

Melkorka

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Melkorka
https://timarit.is/publication/625

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.