Melkorka - 01.07.1950, Síða 8
ana búið. Að þessu athuguðu tel ég ómaks-
ins vert fyrir hvern þann, er til slíks sjóðs
hyggst að stofna, að athuga gaumgæfilega,
hvort ekki væri eins vel farið að setja það
fé í Menningar- og minningarsjóð kvenna.
Tala ég þetta einkum til þeirra, sem hafa í
hyggju að minnast látinna merkiskvenna,
þótt engan veginn sé hægt að telja það
óviðeigandi að minnast karla á sama hátt.
Af konu eru þeir þó allir fæddir og líf
þeirra mjög tengt konum á ýmsa vegu.
Ekki er mér kunnugt um, hvort hægt er
að breyta tilgangi sjóðs, sem þegar er stofn-
aður og staðfestingu hefur hlotið. En ætti
ég hlut að einhverjum slíkum smásjóði til
minningar um einhverja konu, mundi ég
leita eftir, hvort þetta mætti takast og leggja
heldur þá minningargjöf í Menningar- og
minningarsjóð kvenna, ef hægt væri að fá
þessu breytt.
Svo miklar framtíðarvonir eru þessum
sjóði tengdar, að hver þjóðrækinn íslend-
ingur, hvort sem er karl eða kona, hlýtur
þar að sjá möguleika til mikils þroska fyrir
alla íslendinga. Því að liver neitar því, að
konur beri meiri vanda af uppeldi barn-
anna en karlar? Og hver þorir í fullri al-
vöru að neita því, að fjölmenntuð kona
hlýtur að hafa fyllri möguleika til þess að
ala upp börn sín en hin, sem lítillar upp-
fræðslu hefur notið? Jafnvel mætti gera sér
vonir um, að þegar konan verður „jöfn að
rétti, jafnt að vígi,“ til hvers konar náms,
sem þessi sjóður óneitanlega stefnir að,
kunni að rætast eitthvað af hinni djörfu og
björtu áskorun til kvenna, sem felst í þessu
erindi úr Kvennaslag Guðmundar skálds
Guðmundssonar:
Verið mæður vona nýrra!
Verið aldar Ijós!
Gerið landið hýrra, hlýrra,
hrjósturkvist að blómgri rós!
Greiðið veginn sumri og sólu.
söng og kærleiksyl —-
Iiverjum ilmreyr, hverri fjólu
hjálpið þið að vera til.
Að minnsta kosti ættu konur að ala þá von
í brjósti, að tilkoma þeirra sem virkra þátt-
takenda í þjóðfélagsmálum yrði til þess að
göfga og græða. Að öðrum kosti yrði hlutur
þeirra þar eigi sá, sem vera ætti. Og engin
stofnun er til hérlendis, sem eins miklar lík-
ur eru til að um alla framtíð auki þroska og
menningu íslen/.kra kvenna eins og Menn-
ingar- og minningarsjóður kvenna. Hann
hlýtur því að verða óskabarnið, sem allir
vilja hlúa að.
Þeim, sem kunna að eiga einhver erindi
við sjóðinn og geta komið á skrifstofu hans,
skal á það bent, að skrifstofan er á Skálholts-
stíg 7 og er aðeins opin á fimmtudögum kl.
4—6 síðdegis. Hentast er, að öllum stærri
minningargjöfum sé komið þangað og eins
viðbótum við eldri minningargjafir. Þar fást
einnig eyðublöð undir umsóknir um styrk
úr sjóðnum og minningarspjöld eru þar
einnig afgreidd. Annars fást minningar-
spjöld sjóðsins á þessum stöðum í Reykja-
vík: Bókaverzlun ísafoldar, Austurstræti 8,
Bókaverzlun Braga Brynjólfssonar, Hafnar-
stræti 22, Hljóðfærahúsinu, Bankastræti 7,
Bókabúð Máls og menningar, Laugavegi 19,
Bókabúðinni á Laugavegi 100, Bókabúð
Laugarness og Bókabúð Sigvalda Þorsteins-
sonar, Efstasundi 28. Á Akureyri fást minn-
ingarspjöldin í Bókabúð Rikku, Bókaverzl-
un Pálma H. Jónssonar og hjá Hönnu Möll-
er í K. E. A. í Vestur-Skaftafellssýslu má fá
spjöldin hjá frú Gyðríði Pálsdóttur á Segl-
búðum.
Ef einhver vill skrifa sjóðnum vegna ein-
hverra erinda er áritunin:
Menningar ,og minningarsjóður kvenna
Pósthólf 1078
Reykjavík.
Þeir, sem kynnu að vilja afla sér ein-
hverra frekari upplýsinga um sjóðinn geta
snúið sér til einhverrar af þeim konum, er
nú skipa stjórn hans ,en þær eru: Katrín
Thoroddsen, læknir, Teresia Guðmunds-
son, veðurstofustjóri, Þóra Vigfúsdóttir,
Ragnheiður Möller og Svafa Þórleifsdóttir.
34
MELKORKA