Melkorka - 01.12.1956, Síða 4

Melkorka - 01.12.1956, Síða 4
Þjóðfélagið og heimilisstörfin Eftir Önnu Sigurðardóttur Fiest störf miða að því að byggja upp og viðhalcla heimilunum, og bæta iífskjör fólksins, sem á heimilunum búa, um leið og þau efla hag þjóðfélagsins. Raunar eru til störf, sem eru til skaðræðis fyrir þjóðfélagið, en samt gefa þau þeim einstaklingum, sem {Dau stunda, tekjur til þess að lifa af og byggja upp og viðhalda eigin heimili. Öll störf, sem launuð eru eða gefa á ann- an hátt penínga í aðra hönd, teljast í þjóð- hagskýrslum gefa þjóðartekjur. Þau störf, sem ekki eru launuð og eru talin vera unnin í þágu þess einstaklings, sem vinnur þau, teljast ekki gefa þjóðar- tekjur, enda þótt þau, engu að síður en launuð störf, miði að því að byggja upp og viðhalda heimili. Svo er um störfin, sem húsmóðirin vinn- ur á heimilinu, til þess að fjölskyldan geti neytt matar síns á heimilinu, geti búið í hreinum húsakynnum, klæðzt hreinum og heilum fatnaði og á annan liátt lifað því lífi, sem krafizt er í menningarþjóðfélagi. Það er undarlegt, að þjóðfélagið skuli vanmeta svo gjörsamlega þessi störf, þegar húsmóðirin eða aðrir einstaklingar fjöl- skyldunnar vinna þau. Séu heimilisstörfin hins vegar unnin af ráðskonu, vinnustúlku, barnfóstru, þvotta- konu, garðyrkjumanni o. s. frv. heima á heimilinu eða ýmiskonar stofnunum eða einstaklingum utan heimilisins, fá þau allt 1 einu gildi fyrir þjóðarbúskapinn og teljast auka tekjur þjóðarinnar. Heimilisstörfin eru svo tímafrek, að um 1/5 hluti allrar þjóðarinnar hefir ekki að- stöðu til þess að vinna þau störf, sem talin eru efla og auka þjóðartekjur. Þrátt fyrir það eru þau gleymd í bókhaldi þjóðarinnar, gleymd í búreikningum heimilanna, gleymd í skattalöggjöf, gleymd í tryggingalöggjöf, gleymd í rannsóknum og útreikningi fram- færslukostnaðar og gleymd þegar manntöl eru tekin og flokkað í framfærendur og framfærða. Hvort stafar þetta af fyrirlitningu á þeim, sem störfin vinna, eða á störfunum sjálfum? Hvers vegna fer þjóðhagslegt gildi heim- ilisstarfanna eftir því, hver vinnur þau og hvort þau eru greidcl með peningum eða ekki? Hvers vegna gefur það þjóðartekjur að elda mat í tjaldi handa vegagerðarmönnum eða um borð í skipi úti á sjó (og þá meiri tekjur en venjulegt hásetastarf), en ekki þegar húsmóðir eldar mat í eldhúsi á heim- ili sínu? Hvers vegna gefur það þjóðartekjur að draga fisk úr sjó, bera hann á land og selja hann í búð, en að kaupa fiskinn, bera hann heim, lireinsa liann, sjóða liann og bera á borð heima á heimilinu, er aðeins talið unnið í „eigin þágu“, ef húsmóðirin gerir það, og því einskisvirði fyrir þjóðfélagið? Hvers vegna gefur vinna við matvörur ekki þjóðartekjur nema nokkurn hluta af leiðinni að munni neytandans, þegar hús- móðir á hlut að máli? Svarið er víst: Hús- móðirin vinnur í eigin þágu, þegar hún eld- ar lianda fjölskyldu sinni. Já, vissulega. En vinna ekki sjómaðurinn og kaupmaðurinn líka í eigin þágu? Vinna þeir ekki fyrst og fremst í eigin þágu, þágu heimilis síns? Rök- in um vinnu í „eigin þágu“ falla því alveg um sig sjálf. Hvers vegna eykur það þjóðartekjur að 68 MELKORKA

x

Melkorka

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Melkorka
https://timarit.is/publication/625

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.