Melkorka - 01.12.1961, Blaðsíða 12

Melkorka - 01.12.1961, Blaðsíða 12
Icla Ingólfs- dóttir, forstöðu- kona dagheim- ilisins i Steinahlíð. legt fleira er erfitt, þröng húsakynni, vönt- un á starfsfólki á köflum, en þetta er verst. Hvað þykir þér auðveldast og ánœgjuleg- ast við starfið? Ánægjulegast er að hafa traust og jákvætt samband við börnin, finna að dvölin á dag- heimilinu hefur holl og þroskandi áhrif á skjólstæðinga okkar. Kemur það oft fyrir, að börn verði að hœtta á dagheimilinu vegna óyndis? Víst kemur það fyrir, en það er mjög sjaldgæft, sem betur fer, því að oftast liggur einhverskonar öryggisleysi bak við þessi við- brögð barnsins, fremur en að barnið sé raunverulega svo „einrænt", að það geti ekki sætt sig við stóran félagshóp og nýtt umhverfi. Og öryggis þarfnast barnið, e. t. v. flestu öðru fremur. Hvað telurðu að helzt sé hœgt að gera til að hjálpa barninu undir þeim kringum- stœðum? Frá dagheimilisins hálfu reynum við jafn- an að láta einhverja fóstruna taka nýja gest- inn að sér og sýna honum alveg sérstaklega alúð og nærgætni, svo að hann finni, að hann á þar hauk í horni, sem þessi fóstra er. Hún leggur sig fram um að kynnast barn- inu og skapa traust þess og áhuga á nýja umhverfinu. En þegar um slíka byrjunar- örðugleika er að ræðá þá er skilningur og afstaða aðstandenda mjög mikils virði. Per- sónulega tel ég rétt, að sá, sem kemur með barnið fyrstu dagana, ætti ekki að yfirgefa það strax, heidur gefa sér tíma til að dvelja með því góða stund, meðan barnið er að að- laga sig dagheimilinu og fá áhuga á leik- föngum. En þetta er oft erfitt í framkvæmd. Vinnan kallar að hjá þeim, sem kemur með barnið, og jafnvel þó nokkrum tíma sé var- ið til að dvelja hjá því, er það oft og tíðum ekki gert á þann eðlilega hátt, að barnið slappi af, og verði öruggt, heldur finnur það, að beðið er eftir tækifæri til að „stinga af“. Það er oft talað um, að börn, sem dveljast á dagheimilum liggi stöðugt undir smitun- arhœttu af allskyns umgangskvillum. Held- urðu ekki, að nauðsynlegt vœri, að hafa á dagheimilum einhverskonar einangrunar- deild, þar sem börn fengju að dvelja þó að þau vceru t. d. kvefuð? Já, maður heyrir oft um þetta rætt og af því dregin sú ályktun að mæður, sem vinna úti, en eiga börn sín á dagheimili, séu stop- ull vinnukraftur, þar sem þær verði ekki aðeins fjarverandi vegna eigin veikinda, heldur og vegna veikinda barnsins eða barnanna. Hvort þau börn, sem dveljast til langframa á dagheimili eru raunverulega oftar veik, heldur en þau, sem heima dvelja, er erfitt að segja um. Til þess þyrfti að koma nákvæm athugun á nokkuð stórum hóp barna, um nokkuð langt tímabil, þar sem annar hópurinn sækti dagheimili en hinn dveldi heima. Það er auðvitað að börn, sem byrja að sækja dagheimili ung, við skulum segja um 2ja ára aldur, og hafa þá af fáum haft að segja nema foreldrunum, en komast á dag- heimilinu í allnána snertingu við talsverð- an hóp barna og fullorðinna, hljóta að vera í mjög áukinni smitunarhættu frá því sem þau voru lieima hjá sér. Mín reynsla er sú, að mest beri á þessu fyrst í stað, og sé barn- ið að öðru leyti hraust, herðist það tiltölu- 76 MELKORKA

x

Melkorka

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Melkorka
https://timarit.is/publication/625

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.