Melkorka - 01.12.1961, Qupperneq 19

Melkorka - 01.12.1961, Qupperneq 19
Bakið. Fitjið upp 22 lykkjur og prjónið 4 umferðir með grunnmunstri, því næst eru 6 lykkjur fitjaðar upp báðum megin f annarri hverri umferð, nfu sinnum alls (130 lykkjur). Prjónið 25 sm með grunnmunstrinu (7 munstur). Nú er komið að mittinu og prjónaðar 14 umferðir með stuðlaprjóni, en í 1. umferð þeirra eru 60 lykkjur teknar úr með jöfnu bili, og í 7. umferð eru búin til göt: 4 sl, * pr 2 sm, br um pr, 4 sl, endurtakið frá *. — Tvær umferðir slétt prjón og þvfnæst er byrj- að á smekknum: 12 lykkjur með perluprjóni; 46 með grunnmunstri, 12 með perluprjóni. í 4. hverri umferð er 1 lykkja tekin úr hvorum megin innan við perlu- prjónið, alls 9 sinnum. Þegar búið er að prjóna tvö heil munstur þannig (52 lykkjur): 12 lykkjur með perlu- prjóni, 28 með stuðlaprjóni, 12 með perluprjóni. Eftir 4 umferðir eru felldar af 28 lykkjur í miðjunni, perlu- prjóninu haldið áfram, það myndar axlabönd. Eftir 5 sm er fellt af. Framparturinn er prjónaður eins og bakið. Saumið saman hliðarsaumana. Neðantil á hvorri skálm eru teknar upp 75 lykkjur og prjónaðar 10 um- ferðir stuðlaprjón. Þessi kantur er brotinn á úthverf- una og saumaður niður. Festið bendil aftan á klaufina og smellur. Axlaböndin: á framstykkin eru saumaðar stroffur, en tölur á aftari axlaböndin. HÚFA (9—12mán.) Efni: 100 gr. af miðgrófu babygarni, bandprjónai nr 3 (21 lykkja = 8 sm, 21 umferð = 5,5 sm). Munstur (lykkjufjöldi deilanlegur með 6): J,—3. umf.: * 3 sl, 3 br, endurtakið frá *. 4. umf.: slétt. á. umf.: brugðin. Þessar fimm umferðir inynda munsturrönd. Fitjið upp 120 lykkjur og prjónið 18 sm randamunst- ur. í næstu umferð er tekið úr þannig: * 3 sl, br 2 sm, 1 br, endurtakið frá * (100 lykkjur). Nú er prjónað 6 sm i eftirfarandi munstri: • 3 sl, 2 br, endurtakið frá *• í næstu umferð er tekið úr: * 3 sl, br 2 sm, endur- takið frá * (80 lykkjur). Prjónið 10 sm: * 3 sl, 1 br. Takið úr í næstu umferð: * pr 2 sm, 1 sl, 1 br, endur- takið frá * (60 lykkjur). Nú er prjónað * 2 sl, 1 br, endurtakið frá *. Eftir 2 sm prjón er tekið úr: * pr 2 sm, 1 br, endurtakið frá *, því næst tvær umferðir með stuðlaprjóni. Nú er tekið úr með því að prjóna tvær lykkjur saman alla umferðina, þráður dreginn i gegn- um lykkjuafganginn. Búið til stóran skúf og festið i toppinn. Kanturinn er brotinn tvisvar út á við. (Skammstafanir: umf. = umferð; sl = slétt; br = brugðið; br um pr = bregða um prjóninn; pr 2 sm = prjóna 2 lykkjur saman sléttar; br 2 sm = bregða 2 saman.) Amerískur milljónamæringur varð hrifinn af ungri, upprennandi filmstjörnu og skrifaði henni eftirfarandi: „Kæra ungfrúl Ég er orðinn leiður á einverunni og ®tla að festa mér konu. En sú kona verður að kunna þá list að geta hlustað og þagað á réttum tima og verð- ur að vera mér trú allt lífið ..." Leikkonan svaraði: „Hlustal Þegjal Og vera trúföstl Herra minn, hvað ætlið þér i raun og veru að gera við konu? Þér skuluð kaupa yður hundl" melkorka Rithöfundurinn Mark Twain var í veizlu einni að leiða borðdömu sína til sætis. Hann var í ágætu skapi og sagði í aðdáunarróm: „Frú, þér cruð töfrandi fagrar." Konan fyrtist við og svaraði stutt i spuna: „Það er leiðinlegt, hr. rithiifundur, að ég skuli ekki geta endurgoldið gtdlhamra yðar." Þá hló Mark Twain og sagði: „Gerið eins og ég. Skrökviðl" 83

x

Melkorka

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Melkorka
https://timarit.is/publication/625

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.