Melkorka - 01.12.1962, Síða 4
Frá Alþjóðaþingi um afvopnun og frið
Eftir Þóru Vigfúsdóttur
Fjölsóttasta friðarþing sem haldið hefur
verið til þessa var sett í Moskvu mánudag-
inn 9. júlí. Yfir tvö þúsund fulltrúar frá nær
öllum löndum heims höfðu streymt til
borgarinnar undanfarna daga, fjölmennar
sendinefndir og einstaklingar, meðal þeirra
heimsfrægir rithöfundar, vísinda- og iista-
menn. IJað mátti sjá viðtöl í blöðunum við
menn eins og Pablo Neruda og Poul Sartre
og eitt blaðið birti langa grein eftir nóbels-
verðlaunahafann Albert Schweitzer, sem
hann skrifaði frá sjúkrahúsi sínu í frum-
skógum Afríku. Þar segir meðal annars: að
styrkja beri tengsl milli austurs og vesturs
og að þessi andlegu tengsl skapist þegar al-
menningur í vestri og austri gengur fram
fyrir skjöldu og fordæmir notkun kjarn-
orkuvopna . . . undir veldi kjarnavopna
FuUtrúar ganga inn i
Þinghöllina.
MEI.KORKA
munum við hætta að vera siðmenntaðir
menn — og eins og sakir standa er allt of
mikil liætta á að til kjarorkustríðs komi af
einskærri tilviljun. Þeir sem fylgjast með
alþjóðamálum vita að á undanförnum ár-
um höfum við hvað eftir annað rambað á
barmi styrjaldar . . . Greinarhöfundur var
ómyrkur í máli og skoraði á sovézka og
bandaríska valdamenn að láta af kjarnorku-
kappldaupi og binda endi á kalda stríðið.
í ltópi Iiinna erlendu fulltrúa voruin við
fimm frá íslandi: Sigríður Eiríksdóttir
hjúkrunarkona, Ása Ottesen form. Menn-
ingar og friðarsamtaka ísl, kvenna, Guðni
Jónsson jjrófessor, Kristinn Andrésson og
undirrituð. En í J^essu sambandi má geta,
að frá öllum Norðurlöndum voru fjölmenn-