Melkorka - 01.12.1962, Blaðsíða 6

Melkorka - 01.12.1962, Blaðsíða 6
uri, áttum að vera komin á þingstað kl. 9. Við komum okkur í bílana sem biðu fyrir utan hótelið og ökum í morgunsólinni nið- ur Gorkystræti. Mikil umferð, fólkið létt- klætt og brosandi í góða veðrinu. Margir veifa til okkar, það sést á þessum mörgu stóru bílum hverjir eru á ferðinni. Moskvu- búar eru taldir manna gestrisnastir, en ef ti! vi!l liafa þeir sjaldan lagt eins að sér að taka á móti erlendum fulltrúum eins og þeim, sem nú voru á ferðinni. Allt skipulag og móttökur í sambandi við þingið var með þeim hætti að betra var ekki á kosið. Það var ekið að Rauðatorginu, haldið inn í Kreml til þinghallarinnar, nýtízku byggingar sem sómir sér vel og jafnve! nýt- ur þess að standa innan um hinar gömlu fornu hallir þar sem glampar á gullnar spír- ur og turna og mér sýnast gömlu eikurnar sem teygja sig upp í himininn vera grænni og unglegri en þegar ég sá þær fyrir tíu árum. Það vekur athygli að fjöldi borgarbúa liefur safnazt saman fyrir utan þinghöllina og sumir halda á blómum og keppast um að rétta fulltrúunum. Þá sex daga sem þing- ið stóð var ævinlega rnikill mannfjöldi fyrir utan þinghöllina, fólk á öllum aldri, ó- breyttir borgarar sem gerðu sitt til að skapa það andrúmsloft góðvildar og áhuga sem ríkti kringum ráðstefnuna. í HINUM stóra forsal þinghallarinnar er allt eitt iðandi mannhaf. Dökkir, svartir, gulir og hvítir standa hver við annars hlið og manni finnst að allir þjóðflokkar sem þennan hnött byggja séu komnir hér á einn stað. Litríkir búningar Afríku- og Asíu- þjóðanna vekja strax eftirtekt. Indversku konurnar eru í fögrum saríum og með rauðan depil milli augnanna, sem er tákn trúarlegs eðlis, en karlmennirnir í grænum síðum, tvíhnepptum jökkum með hvítar húfur á höfðinu og minna allir á Nehru. Sn athyglin beinist aðallega að Afríkubúum. Þeir eru misjafnlega dökkir. Flestir háir vexti og tígulegir í framgöngu, klæddir víð- um skikkjum í skærum litum, úr silki eða einhverju grófu efni og eru með turban á höfði eða skinnstróka. Einn fulltrúanna, stór og mikill að vallarsýn, var með heila kýrlnxð á herðunum og gljáði á strokin hár- in, en þó hann væri með þennan skinnfeld var eins og hann væri kominn beina leið út úr frumskógunum. Seinna vissum við að þetta var einn af fulltrúunum frá Kenya, Odinga að nafni, mikil frelsishetja. Mynda- smiðir og blaðamenn eltu hann á röndum eins og ungu þeldökku stúlkuna frá Súdan, sem virtist bera af öðrum konurn þarna að óvenjulegum yndisþokka. Hinn mikli fundarsalur sem rúmar alls sex þúsund manns var brátt fullsetinn. Á svölum meðfram veggjum salarins sátu er- lendir og innlendir gestir og blaðamenn frá heimsblöðunum. Við hvert sæti fulltrúa voru nýtízku heyrnartæki og voru ræður manna þýddar á 14 þjóðtungur, þar á með- al ensku, þýzku, frönsku og sænsku. Af Irinum 117 þjóðum sem áttu þarna fulltrúa var stærsta sendinefndin frá Bandaríkjun- um, 190 manns, 174 frá Brasilíu, 140 frá Englandi og 130 frá Indlandi og yfir 100 l'rá Frakklandi, Ítalíu og Japan. Þingið sátu m. a. 340 kennarar, 128 læknar, nær 200 rit- höfundar og listamenn, yfir 100 blaðamenn, 166 verkamenn, 48 bændur, 76 verzlunar- menn. Þessar tölur sýna að þarna voru full- trúar frá ólíkustu félagssamtökum og stétt- um og talar það sínu máli. Olga Pobleta des Espenosa frá Chile, tíguleg gráhærð kona, formaður undirbún- ingsnefndar þingsins, gekk að ræðustól og ávarpaði þingið og vék að tilgangi þess og markmiði. Mælti síðan með að Eugine Cotton, forseti Alþjóðabandalags lýðræðis- sinnaðra kvenna, yrði kjörin fyrsti fundar- stjóri þingsins og var það samjrykkt með löngu lófataki. Forseti heimsfriðarráðsins, prófessor John Bernal, flutti því næst aðalræðuna og lióf mál sitt á því að menn væru hér saman- 42 MEI.KORKA

x

Melkorka

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Melkorka
https://timarit.is/publication/625

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.