Melkorka - 01.12.1962, Side 16
Minningar frá Kúbu
Eftir Kristrúnu Agústsdóttur
Þegar flugvélin lækkaði flugið og settist
á José Martí flugvöllinn í Havanna, liöfuð-
borg Kúbu, fann ég til mikils feginleika að
liafa nú aftur jörð undir fótum, því við
höfðum verið á flugi í næstum því heilan
sólarhring á leiðinni frá Prag. Þegar dyrnar
voru opnaðar fundum við þegar að við
vorum komin í land sem var næsta frá-
brugðið íslandi; hitinn var svo mikill að
mér fannst eins og ég væri að fara inn í
bakarofn, þótt klukkan væri ekki orðin sjö
að morgni. Og við manni blasti litadýrð
hitabeltisins, moldin rauð, blöð trjánna og
konungspálmanna sterkgræn og hvers kyns
einkennilegur gróður sem ég þekkti aðeins
úr kvikmyndum og bókum. Ekki var fólkið
síður nýstárlegt og litfagurt í mínum aug-
urn, svart, gult, brúnt og hvítt.
Havanna liefur á sér mikinn stórborgar-
brag, enda er íbúatala hennar 1,6 miljónir
að úthverfum meðtöldum. í þeim bæjar-
Iiluta þar senr við bjuggum bar mest á ný-
tízkulegum háhýsum, allt upp í 30 hæðir.
En miklu rneira af borginni er í spönskum
stíl og þar er að finna margar fornar bygg-
ingar, þar á meðal höfuðkirkjuna þar sem
Það má líka sjá það núna á þökum hús-
anna í Reykjavík að við erum ekki með
neina minnimáttarkennd og reisum okkar
sjónvarpsstengur sumstaðar tvöfaldar, svona
er mikill máttur auglýsinganna. í sjónvarpi
hermanna lrá Keflavíkurflugvelli er líka
svo margt skemmtilegt: sýning á innbúi
Kennedys, tvö glæpaleikrit á dag og Mikki
mús handa Velvakanda Morgunblaðsins og
bræðrum lians.
bein Kólumbusar voru geymd allt til síð-
ustu aldamóta þegar Spánverjar misstu yfir-
ráð sín yfir Kúbu. En innan um glæsileg
hverfi forn og ný má sjá fátækrahverfi sem
eru svo ömurleg að þeinr verður naumast
lýst með orðum. Húsunum er klesst saman
úr kassafjölum, blikkplötum og yfirleitt
hverjum þeinr efnivið senr íbúarnir hafa
getað náð í. í þessmn hreysum er inoldar-
gólf, ekkert vatn, ekkert skolpræsi, engin
salerni. Þarna bjuggu aðallega negrar, at-
vinnulausir og fáfróðir. Andstæðurnar milli
Jressara hverfa og háhýsanna nýju sýndu í
Fátcekrahverfi á Kúhu.
52
MELKORKA