Melkorka - 01.12.1962, Page 17
Nýtt ibúðarhverfi
austan við Havanna.
S5S5SSSS”"»»sSó5Si|gei n
fflWaaaMB s
Íii^SIliSSiSiilÍÍiSSS n
SIí=::|! \
ju.t,-vlli8BSBBlg8 %
ƻtai
. i-í
W i-(
a'i-S
iíia
wr;,iai
leil'tri þjóðfélagsandstSeður þær sem voru
ástæður byltingarinnar á Kúbu. Nú er unn-
ið ötullega að því að útrýma fátækrahverf-
ununi, við sáum mjög víða ný og vistleg
smáíbúðahverfi sem íbúar fátækrahverf-
anna höfðu sjálfir unnið að að byggja, og í
austurhluta borgarinnar eru að rísa ljóm-
andi falleg nýtízkuleg bæjarhverfi með stór-
um sambýlishúsum, raðhúsum og einbýlis-
húsum.
Kúba er nokkru stærri en ísland, I 15.000
ferkílómetrar. Hún er í útjaðri hitabeltis-
ins, og er meðalhitinn í landinu 24—27 stig
á sumrin en um 21 stig á veturna. Gróður
sæld er svo rnikil að unnt er að lá þrefalda
uppskeru af ýmsum gróðurtegundum. IJar
vaxa liverskyns tegundir al' suðrænum
ávöxtum, ananas, appelsínur, sítrónur,
mango, einar fjórar tegundir af banönum.
lJar eru stórar ekrur al kaffi, baðmull, lirís-
grjónum, tóbaki, að ógleymdum sykur-
reyrnum, en sykurrækt er eins mikilvæg
fyrir Kúbubúa og fiskveiðár fyrir Islend-
inga. Einnig eru í landinu dýrmæt jarðefni,
svo að rnaður liefði mátt ætla að fólkið í
landinu lifði áhyggjtdausu líli. En því fór
fjarri. Meirihlutinn af þeim sjö miljónum
manna sem nú búa í landinu þurfti að
heyja daglega baráttu við skortinn.
Segja iná að Kúbubúar hafi í heila öld
háð baráttu fyrir frelsi sínu og sjálfstæði. A
ofanverðri 19. öld háðu þeir langvinna bar-
áttu gegn Spánverjum og þeir voru síðasta
nýlenda Spánverja í Vesturheimi sem hlaut
frelsi. En þá tóku Bandaríkin við hlutverki
Spánverja, sendu margsinnis hersveitir til
Kúbu, komu sér upp herstöð og náðu hin-
um víðtækustu tökum á öllu efnahagskerf-
inu. Bandaríkjamenn áttu ítök í öllum
mikilvægustu fyrirtækjum landsins, verk-
smiðjum, bönkum, hótelum, símstöðvum,
rafmagnsstöðvum, útvarpsstöðvum, blöðum
o. s. frv. Auk þess var mikill hluti landsins í
þeirra eigu. Auðmennirnir á Kúbu voru að-
eins umboðsmenn hinna bandarísku stéttar-
bræðra sinna. Þessi yfirstétt, innlend og er-
lend, byggði handa sér hallir með þeim
íburði sem mestan er hægt að hugsa sér.
MlíLKORKA
53