Melkorka - 01.12.1962, Side 19

Melkorka - 01.12.1962, Side 19
áttunni frá upphafi og gat sér mikið orð. Hún er srift Raúl Castro hermálaráðherra o Kúbu, yngri bróður Fidels. Aðalverkefni samtakanna er eins og áður er sagt að fá konur til að taka virkan þátt í þjóðmálum. í því skyni er nú verið að stofna sérstakan skóla til þess að mennta konur til forustu starfa. Þá starfrækja samtökin fjölmarga al- menna skóla handa konum og hverskyns námskeið. Þau hafa gert sérstakar ráðstafan- ir til þess að ná til kvenna í sveitum, en þar var fáfræðin mest. Hafa m. a. verið haldin námskeið til að kenna sveitastúlkum að nota saumavélar, en margar þeirra höfðu aldrei séð þvílíkan grip áður. Hafa um 14.000 stúlkur tekið þátt í slíkurn námskeið um síðan samtökin voru stofnuð; stóðu námskeiðin í sex mánuði og voru stúlkun- um algerlega að kostnaðarlausu; einnig lærðu þær ýmislegt annað svo sem mat- reiðslu, heilsugæzlu og klæðaburð. Hver stúlka fékk að lokum saumavél að gjöf með því skilyrði að hún yrði að kenna tíu kon- um öðrum að sauma á þessu ári. Sagði Ester Ninega að gaman hefði verið að fylgjast með því hvernig sveitastúlkurnar gerbreytt- ust á þessum sex mánuðum; margar þeirra hafa síðan gerzt forustukonur í sínum byggðarlögum. Þá starfrækja samtökin vöggustofur og barnaheimili fyrir ljörn á aldrinum sex mánaða til sex ára, en slíkar stofnanir voru algerlega óþekktar fyrir byltinguna. Eg kom síðar á eitt slíkt. barnaheimili í Ha- vanna og var þar allt með miklum myndar- brag, glöð og falleg börn, svört og hvít, allir jafn réttháir til öryggis og heilbrigðs lífs. Þá beita samtökin sér fyrir því að konur taki þátt í öllum þeim verkefnum sem brýn- ust eru við hlið karlmannanna. Þær vinna sjálfboðaliðsvinnu við landbúnaðarstörf, liöggva sykurreyr og tína kaffi þegar með þarf. Eitt til tvö hundruð þúsund konur taka þátt í heimavarnarliðinu, margar þeirra í sérstökum hjúkrunarsveitum. Þá Þrjár forustukonur kvennasamtakanna. Frá vinstri: Est- er Ninega, form. þeirrar deildar kvennasamtakanna sem annast samskipti við önnur lönd; Irina Erapote, vara- form. og Alieia Imþeratori, stjórnarkona i kvennasam- tökunum. gefa samtökin út tvö kvennablöð sem korna út í 100.000 eintökum hvort. Samtökin hafa deildir í öllum héruðum Kúbu og undirdeildir í hverju bæjarhverfi í borgunum. Konurnar greiða ákveðið hlut- fall af tekjum sínum í árgjald, og nægja þær tekjur til að standa undir allri starfsemi samtakanna. Formlegt stofnþing verður haldið í haust, og hafa verið kjiirnir til þess 3.500 fulltrúar lrá öllu landinu; verður þar gengið endanlega frá lögurn og skipulagi. Samtökin liafa sérstakt samband við kvenna- samtök í öðrum Ameríkuríkjum, og ]rau eiga fulltrúa í framkvæmdastjórn Alþjóða- sambands lýðræðissinnaðra kvenna. Ég átti síðar kost á að heimsækja ýmsar þær stolnanir sem starfræktar eru á vegum kvennasamtakanna. í Camagiiey, stórri bor y um miðbik Kúbu, kom ég til að mynda á heimili fyrir vændiskonur, en vændiskonur rnunu hafa verið fleiri á Kúbu en í flestum MELKORKA 55

x

Melkorka

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Melkorka
https://timarit.is/publication/625

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.