Melkorka - 01.12.1962, Page 26
Barnagarður fyrir skólabörn
E£tir Marlu Þorsteinsdóttur
Ein af þeim stofnunum, sem ég hef haft
því láni að fagna að kynnast hér í Leipzig,
er barnagarður fyrir skólabörn. Eg heim-
sótti barnagarð í \V7asserschole og átti stutt
viðtal við forstöðukonuna þar, frú Ingeborg
Naczinsky.
„Hve langan tíma dagsins eru börnin
hérna?“
„Þau koma kl. 6 á morgnana og fara heirn
kl. 5 e. h. En þau eru ekki allan tímann liér,
heldur fara þau í skólann og koma svo hing-
að aftur þegar þau koma úr honurn, og læra
undir næsta dag.“
„Eru þessir garðar þá yfirleitt í sambandi
við einlivern skóla?“
„Já, allir slíkir garðar tilheyra skólum og
skólastjóri viðkomandi skóla er ábyrgur fyr-
ir rekstri þeirra. Á þessum barnagarði eru
140 börn frá 6—14 ára aldri. Við höfum 6
deildir og eru 25 börn í hverri deild.“
„Það eru þá ekki öll börn, sem skólann
sækja, sem eru í slíkum barnagörðum?“
„Nei, Jtessir garðar eru einungis fyrir
börn þeirra foreldra er bæði stunda vinnu
utan heimilis eða börn einstæðra mæðra,
3^ liluti barnanna eru börn verkafólks."
„Hvað kostar að hafa börn á svona Itarna-
garði?“
„Dvölin er ókeypis, þau hal'a með sér
morgunmat, svo íá þau miðdagsmat hérna
og einnig mjólk og brauð um kaffileytið,
endurtekið frá *. Nú eru 67 (75) lykkjur á prjóninum.
3 sm stuðlaprjón. Næsta umferð: 2 sl saman alla um-
ferðina. 3 umferðir slétt prjón, því næst ein umferð
þar sem stoðugt er ]jrjónað: 2 sl saman, og loksins 2
umferðir slétt prjón, bandið slitið og dregið í gegnum
lykkjurnar. Saumið húfuna saman og festið hvítan
dúsk í toppínn. Helmingurinn af hvíta bekknunr er
brotinn upp á réttuna.
fyrir það borga foreldrarnir 50 penny á
dag, svo það er langt undir kostnaðarverði."
„Hve rnargar stúlkur vinna við þennan
barnagarð?“
„Við erum 7, sem vinnum við kennsiu
og gæzlu barnanna, hver hópur hefur sína
kennslukonu og ég er sú sjöunda og hef
engan hóp, en lít eftir með Jteim öllum.“
„Hvaða menntunar er krafizt fyrir stúlk-
ur, sem ætla að vinna þetta starf?"
„Söntu menntunar og fyrir fóstrur á
barnaheimilum, en það er eða á að vera 5
ára nám. Sökum fólkseklu hefur orðið að
slá af þessunt kröfum og stytta námið allt
ofan í 2 ár, en til Jtess að geta veitt svona
barnagarði forstöðu er krafizt 5 ára náms,
og allar forstöðukonur hafa Jtá menntun
og einnig forstöðukonur á barnaheimilum
hér.“
„Hve lengi hafið Jtið haft svona barna-
garða hérna?“
„Síðan 1945 hafa Jteir verið almennir og
í Jteirri mynd, sem þeir eru nú, Jteir voru
til áður, en þá voru Jteir einkarekstur og
bæði fáir og ákaflega dýrir?“
„Getið þér sagt ntér hvernig tilhögun er á
námi og starfi barnanna hér?"
„Já, við skipuleggjum allan tíma barn-
anna og skiptum honum milli náms og
leikja. í byrjun hvers mánaðar semjum við
svokallaða mánaðaráætlun og nær hún yfir
ýmislegt, sem ekki kemur skólanum bein-
línis við. í byrjun hverrar viku semjum við
svokallaða vikuáætlutt, og er hún gerð í
samráði við kennara viðkomandi barna, en
Jtar er þvað leggja beri áherzlu á að kenna
í hverri viku, enn fremur er ríflegur tími
ætlaður til leikja á hverjum degi.“
„Ég hefði gantan af að sjá eina slíka á-
62
MELKORKA