Melkorka - 01.12.1962, Qupperneq 28

Melkorka - 01.12.1962, Qupperneq 28
 Sögur um Tótu Tóta er fimm ára. Við erum góðir vinir. Hún kemur alltaf að heim- sækja mig þegar hana langar til þess. Tótu finnst mjög gaman að sögum. Stundum bý ég til sögur um Tótu. Ef ég á annríkt fær hún sér bók og skoðar í henni myndirnar eða leikur sér að smáhlutum á hillun- um. Vinkonan mín litla er greind og dálítið út undir sig. Eg sá hana teygja sig eftir útskorn- um skógarhirti. Annað hornið á honum var brotið og límt á aftur. ,,Ekki snerta hann,“ sagði ég. ,,Hornið dettur af.“ En Tóta sagði þá: „Mamma las fyrir mig bók um skógarhirti. í henni var sagt að horn- in dyttu af þeim og svo kæmu bara ný í staðinn.“ Tóta er ekki beinlínis örlát. Hún var með súkkulaðistykki og ég sagði við hana: ,,Viltu gefa mér bita?“ „Namm-namm. Þetta er ekki einu sinni nóg handa mér.“ Eftir dálitla stund krafsaði hún í hurðina eins og svolítill kettlingur og kom inn. Hrm rétti mér lófann. ,,Hérna, þetta máttu eiga.“ Það var agnarlítill súkkulaðibiti í lófa hennar. ,,Má ég eiga það?“ sagði ég undr- andi. ,,En það er ekkert “ ,,Víst er það. Það er súkkulaði. Hérna!“ ,,En ég sé ekki neitt.“ Það kom fát á Tótu. Hún var særð af því ég kunni ekki að meta gjafmildi hennar. „Þakka þér samt fyrir,“ sagði ég. ,,Og þetta mátt þú eiga.“ Og ég gaf Tótu stóran sykurmola. ,,Sérðu?“ „Auðvitað sé ég,“ sagði hún. „Ég sé mjög vel, læknirinn sagði það meir að segja. En þú sérð víst ósköp illa “ O. Mamayeva. Reiðu skórnir Ari litli gat orðið klætt sig ef mamma hjálpaði honum. Hann gat sjálfur farið í skóna og hnýtt reim- arnar líka. En skórnir hans vorn eítthvað 64 MELKORKA

x

Melkorka

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Melkorka
https://timarit.is/publication/625

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.