Melkorka - 01.12.1962, Page 30
Ávarp til kvenna heims
Við konur úr öllum heimsálfum sem
sitjum alþjóðaþing i Moskvu um algerða
afvoþnun og frið og teljum þriðjung allra
fulltrúa, héldum með okkur fundi dagana
13.-14. júlí til þess að rœða og komast að
niðurstöðu um hvernig við konurnar gcet-
um á árangursríkastan hátt lagt fram krafta
okkar i þágu algerðar afvoþnunar og friðar-
mála.
Við erum fulltrúar milljón kvenna, sem
skilja eins og við, að kjarnorkustyrjöld
mundi að mestu tortima öllu lifi hér á
jörðu og jafnframt að geislavirk efni, sem
myndast við tilraunir með kjarnasþrenging-
ar, eitra loftið og sþilla lífi á jörðu og i sjó
og fœðitegundum og eru þvi ógnun við
mannkynið og óbornar kynslóðir.
Við trúum þvi að alger afvoþnun geti
komið í veg fyrir slíkar hörmungar. Við
krefjumst því að kjarnorkuveldin geri með
sér samning sem banni nú og um alla fram-
tíð tilraunir með hverskonar tegund kjarna-
voþna.
Við krefjumst einnig algers banns við
framleiðslu þeirra og annarra múgmorðs-
voþna á grundvelli algerðrar afvoþnunar
því að þá fyrst mun verða mögulegt að ráð-
stafa þvi gífurlega fjármagni sem fer til vig-
búnaðar i þágu bœttra lifskjara.
Til að ná þessu takmarki er nauðsynlegt
að fá meiri fjölda kvenna og kvennasam-
taka til að sameinast i baráttu fyrir afvoþn-
un og friði.
Látum sérhverja okkar sem vernda vilj-
um heimilisheill og framtið barna okkar,
strengja þess heit að unna oltkur ekki hvild-
ar fyrr en við höfum sannfcert aðrar kyn-
syslur okkar um að þœr verði einnig nú þeg-
ar að leggja friðaröflunum lið <og starfa á
þann hátt sem beztan árangur gefur í
hverju landi fyrir sig.
Og látum þær konur taka aðrar nýjar
rneð sér og hjálþast þannig að í starfi, og
þá m,un okliur takast að ná fullum árangri.
til að koma á algerðri afvopnun.
Og þessi fylking sem er viðbrögð lifsins
mun á sigursœlan hátt standa gagnvart
þeirri fylkingu afturhalds hvers viðbrögð
eru kjarnorkustyrjöld og dauði .
Við heitum á öll kvennasamtök og öll
friðarsamtök kvenna að vinna einhuga með
öðrum friðaröflum í landi sínu að algerðri
afvopnun og að því að ala upp börn og
unglinga i anda friðar og vináttu.
Lengi lifi samstarf kvenna um allan heim
til verndar mannkyninu.
ÖG
MELKORKA