Melkorka - 01.12.1962, Side 35

Melkorka - 01.12.1962, Side 35
eyðileggja þær. Einkum síðan þetta með ferðina komst til tals. Auðvitað verður allt öðruvísi þegar hún kemur aftur. Þá verður hún orðin alveg fullorðin, fer ef til vill að gifta sig, kynnist máske mannsefninu þarna í útlandinu, get- ur jafnvel hugsazt, að hún eigi eftir að gift- ast útlendingi og búa erlendis. Heilt ár er þangað til ltún kemur aftur, og allt mögu- legt getur gerzt á svo löngum tíma. Hann á sennilega líka unnustu, þegar hún kemur aftur, stúlku úr sinni stétt, auðvitað verður það þannig. En náttúrlega heilsar hún upp á hann, spyr hvernig honum líði og hvernig það gangi. Hún er ekki þannig gerð------ — En að þetta skykli geta komið fyrir —? Hann er laglegur. Laglegri en flestir aðrir. á sinn liátt. Vinkonur hennar Iiafa sagt: Þessi Jenssensstrákur — að þú skulir geta að þér gert að daðra ekki dálítið við hann. Sterkur er hann líka. Þegar hún sneri á sér fótinn, bar hann liana upp alla stiga, upp á fjórðu liæð eins og ekkert væri. Lyft- an var í ólagi. Svo sátu þau hér saman eitt kvöldið, livaða erindi, sem þau áttu nú hingað eigin- lega. Fætur þeirra báru þau liingað, tóku víst af þeim ráðin. Forvitnin, sem kenmr, þegar maður er orðinn stór, hafði gripið þau. Löngun til að vita, Iivað hann gerði — — vita, hvað liann þyrði að gera, kom yfir hana. Þannig var það. Augnabliks freisting. Nei, hún hafði hugsað um þetta áður. En liann þorði ekki. Og hún gerði nú ekkert meira en að leggja hönd sína á hönd hans. Hann heiði getað látið þar við sitja. Þetta var í rauninni allt honum að kenna. Hefði liana getað órað fyrir því, hvernig þetta yrði? Hún hafði kysst Pétur. Það var ekkert, bara grín, eitt- hvað ónauðsynlegt og lieimskulegt, sem þau hefðu eins vel getað látið ógert. Ekki einu sinni, að það væri óleyfilegt. Pétur var af svo góðu fólki, peningar og allt. Það yrði víst ekki tekið neitt hátíðlega heima hjá henni, þó að upp kæmist, að hún hefði átt í kossaflensi við Pétur. En þetta var eins og kreist og kramið fram í henni, vakið til lífs af röddinni hans djúpu, hitaði út í hverja taug og dró hana hingað nauðuga viljuga kvöld eftir kvöld. Þetta er þriggja vikna gamalt ævintýr og það mun lialda áfram að lifa í henni lengi, lengi------- — Ég skal kyssa þig, svo að þú gieymir því aldrei. Orðin koma fram í hugann þar sem hún hvílir í faðmi hans og nýtur atlota frá munni lians, frá orðum hans og augna- ráði, ósjálfstæð og sæl-----svo að þú get- ir aldrei gleymt því. Ósanngjörn tilfinning um að tilheyra honum kom upp í henni, áköf þrá eftir að vera honum góð, góð, innilega góð. Hún tekur með báðum höndum um höfuð hans, er blíðari og viðkvæmari við hann en nokkru sinni áður. Hún, sem kom í kvöld í þeim tilgangi að binda enda á þetta, eftir því sem hægt væri, án þess að særa, án þess að allt endaði með leiðindum og vonzku. Andlit hans er orðið einhvern veginn eins og nýtt. - Égdró þig á sleða, þegar þú varst lítil. Manstu J)að? — Þú varst nú ekki mikið stærri en ég. — O, jú, og sterkari. Manstu eftir víginu okkar, árið sem mikli snjórinn var. Manstu eftir snjóklumpunum, senr ég velti Jrá. Þeir voru dálítið, en þínir . . .. En í kassanum utan af píanóinu, sem við höfðurn fyrir Iiús á sumrin, var Jrað nú ég, sem lagði bezt til. Setti glas með blómum á borðið og fleira þess háttar. — Blóm í flösku. — Alls ekki. Jú, fyrst var það bara iiaska. En seinast tók ég reglulega fínan blómstur- vasa úr herberginu mínu. Ertu búinn að gieyma því. Þú varst svo hrifinn af því, veslingurinn, og vildir helzt sitja inni og liafa það náðugt, í staðinn fyrir að vera úti og höggva eldivið og fleira, sem Jrú áttir að gera. MELKORKA 71

x

Melkorka

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Melkorka
https://timarit.is/publication/625

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.