Melkorka - 01.12.1962, Síða 39
UM ANDLITSSNYRTINGU
Við þurrt höruml er notuð eggjarauða, hún er hrærð
i 4—5 dropum af ólífuolíu og nokkrum dropum af
sítronsafa. Þessu er smurt þykkt á hörundið og látið
liggja á í 20 mín. Þvcgið af með volgu vatni.
Við feitt hörund skal einungis nota eggjahvítu. Hún
•er þeytt í þunna froðu ásamt nokkrum dropum :if
sítrónsafa. ]>essi andlitsgríma, sem er nokkuð stíf, á að
sitja á í 15 mín. Einnig þevgin af með volgu vatni.
Hvcitiklið er hrært í volgri nýmjólk og borið á and-
litið. Látið sitja á í 10—15 mín. Mjög endurnærandi
fyrir ltúðina.
Mjólk og hunang er eitt elzta fegrunarlyfið sem til
er. Það er blandað á þann hátt: 1 matsk. hunang er
brætt í vatnsbaði og síðan hrært saman við 2—3 matsk.
af hrárri mjólk. Það er síðan borið á hörundið og látið
vera yfir nóttina.
Mjólk er ennfremur áhrifamikið fegrunarlyf hæði
innvortis og útvortis. Nýmjólk, áfir og rjómi innihalda
mikið magn af kalki ásamt A—15—C og D-vítamínum,
sem hafa heilbrigðislega og fegrunarlega séð mikil á-
lirif á bæði hörundið, hárið, neglurnar og augun. Súr-
mjólk og áfir verka cinnig blóðhreinsandi, og efsta
lagið af mjólk eða rjóma hefur einkum góð áhrif gegn
byrjandi hrukkum við augun og græðir sprungnar
varir.
Notið einhverja af þessum grímum i hverri viku.
Það örfar hlóðrásina, bætir úr lýtum og styrkir hör-
undið.
Handsnyrting. Hrjúfar hendur þurfa ckki að springa
eða verða rauðar ef oft er notast við kremliandáburð
eða glyserin, blandað með 1/8 með spiritus og þess gætt
að auki að nóg feiti sé borin á þær á kvöldin.
Nudd er einnig mikilvægt fyrir hendurnar. Byrjið á
fingurgómunum og nuddið öll liðamót vandlcga.
Nuddið einig úlnliði og framliandleggi.
Naglabandið má aldrei klippa eða skera, heldur á að
ýta því upp eftir hvern þvott. Við það verður lögun
naglanna fegurri.
Notið gúmmíhanzka við störf er skemma hendurn-
ar. Þar sem nauðsynlegt er að hafa ntikla feiti á hönd-
um um nætur, ef hendurnar eiga að vera mjúkar og
fallegar er hyggilcgt að nota þá hanzka, t. d. þvotta-
skinnshanzka.
MELKORKA
75