Vesturland

Árgangur

Vesturland - 24.12.1961, Blaðsíða 5

Vesturland - 24.12.1961, Blaðsíða 5
VESTURLAND 5 íaflfélai bfjarðar 60 ára „ . . . Síðan ég kom hingað fyrir núlega 37 árnm hefur áhugi fyrir skák talsvert glæðst á Vestf jörðum, eins og víðar á land- inu, og hinar nú almennt gildandi útlendu skákreglur eru víðast hvar á landinu húnar að útrýma liinni íslenzku „vald- skák“ og öðrum gömlum skákkreddum. En okkur vantar heppilega kennslubák í skák og skákdálk í einhverju viku- blaðinu, til þess að áhuginn á þessu „nóbla“ spili verði al- mennari. Hér í bænum koma nú nokkrir skákmenn saman einu sinni í viku til að tefla, og vona ég, að það verði byrjun til skákklúbbs, auðvitað „en miniature“, þar sem bæjarbúar eru alls ekki nema 1000 . . . “ Þannig skrifar Þorvaldur Jóns- son, læknir á ísafirði, til Willard Fiske veturinn 1901, þess manns, sem íslenzkir skákunnendur eiga hvað mest að iþakka. Willard Fiske var Ameríkumað- ur, en hafði snemma mikinn áhuga á íslenzkum fræðum og raunar öllu því, sem íslenzkt var. Dvaldi hann mörg ár hér á landi við að rannsaka sögu skáktaflsins á Is- landi og gaf síðan út um þær rannsóknir bókina „Chess in Ice- land“ sem er mikið rit og varð það til að vekja athygli útlendinga á skák íslendinga. Frá því í lok marzmánaðar 1900 vann hann í nærri þrjú ár stöðugt að því að útbreiða og vekja áhuga manna á íslandi á skák. Voru fyrir hans tilstuðlan stofnuð skákfélög víða um landið og gaf Fiske þeim öll- um töfl og skákbækur. Landsbóka- safninu í Reykjavík gaf hann heilt skákbókasafn, eitt hið full- komnasta, sem þá var til. Á hvert heimili í Grímsey sendi hann skák- borð og bækur, en af skáksnilld Grímseyinga fóru þá miklar sögur. Á þessum árum gaf hann út skák- tímarit á íslenzku „1 uppnámi“, var það prentað vestan hafs og er enn í dag talið eitt vandaðasta og bezt ritaða skákblað, sem út hefur komið í heiminum. Um aldamótin var Þorvaldur Jónsson, læknir, talinn einn hinn bezti og sterkasti skákmaður á ís- landi. Hann var sá eini, sem fylgd- ist eitthvað með erlendri skák og stúderaði skák af bókum. Er þess getið að skákir eftir hann hafi birzt í útlendum skáktímaritum, þær fyrstu eftir Islending. Þor- valdur skrifaðist mikið á við Willard Fiske og gaf honum upp nöfn á þeim skákmönnum, sem íremstir stóðu hér um slóðir og fengu þeir allir send töfl. Þegar stofnun Taflfélagsins var í bígerð gaf Fiske töfl og bækur. Voru tafl- mennirnir sérstaklega stórir og vandaðir, blýþyngdir, frá ítalíu. Taflfélag Isafjarðar var svo formlega stofnað veturinn 1901— 1902 og voru stofnendur m.a. þess- ir: Þorvaldur Jónsson, læknir, sem var formaður. Hannes Hafstein, sýslumaður og skáld. Ragnheiður Hafstein, kona hans. Helgi Sigurgeirsson, gullsmiður. Þorvaldur Jónsson, prófastur. Grímur Jónsson, kennari. Jón Grímsson, sonur hans, nú málaflutningsmaður og eini nú- lifandi stofnandinn. Guðmundur Bergsson, póst- meistari. Jón Laxdal, verzlunarmaður og tónskáld, og Gyða Þorvaldsdóttir (læknis), kona hans. Eins og sjá má af þessum nöfn- um, hefur það oftsinnis sýnt sig að iðkendur skákar hafa margir hverjir reynzt hinir merkustu menn á öðrum sviðum, ekki hvað sízt fyrir sakir þess andlega þroska og skarpleika, sem skákin hefur þjálfað með þeim. Taflæfingar voru að jafnaði haldnar reglulega einu sinni í viku, á laugardögum, og var teflt í „Gamla Spai’isjóðnum", húsi því, sem Haraldur Guðmundsson, skip- stjóri, á nú heima í, en þá var húsið aðeins ein hæð. Eitthvað af skákum var skrifað niður, en þær eru nú flestar glataðar. Er árin liðu, og Þorvaldur læknir var fall- inn frá, fluttust taflfundirnir upp lá „Nord Pól“ (1908—1915) til Sölva Thorsteinssonar, veitinga- manns og lóðs, (þá var þar einnig billjard) og bættust nú nýir menn í hópinn, svo sem Guðmundur Hannesson, málaflutningsmaður og síðar sýslumaður á Siglufirði, og Ólafur Davíðsson, verzlunar- stjóri, en aðrir heltust úr lestinni. Stríðsárin trufluðu að vonum mjög öll félagsstörf, og er stríð- inu lauk var starfsemi taflfélags- ins í molum, og bar félagið ekki barr sitt lengi eftir það. Þó tefldu menn ávallt nokkuð á þeim árum i heimahúsum. Má þar geta þeirra Sigurgeirs Sigurðssonar frá Kirkju- bæ, sem síðar átti mestan þátt í að efla félagið á ný og er enn starfandi félagsmaður kominn iað áttræðu, og Halldórs Jónssonar frá Naustum, en báðir voru þeir sjómenn og lengi formenn á bát- um. Á árunum 1930—1936 færist á ný líf í félagsstarfsemina og eru nú taflæfingar haldnar Alþýðu- hússkjallaranumi, („Miðfélagið“). Auk áðurnefndra manna komu þar m.a. við sögu þeir Marinó Nordquist, Kristinn Pétursson, Jón Sv. Kristjánsson, en þessir menn voru einnig formenn á bát- um, Ingimundur Ögmundsson, smiður, og Steinn Guðmundsson (Tangagötu 10). Á skákmóti, sem haldið var á þessum árum urðu úrslit þau, að efstur varð Marinó S K Á K tefld á Isafirði haustið 1892. Hvítt: Helgi Sigurgeirsson gullsmiður Svart: Þorvaldur Jónsson, læknir. — Muziobragð —- 1. e4 e5 2. f4 exf4 3. Rf3 g5 4. Bc4 g4 5. 0-0 gxRf3 6. Hxf3 d5 7. Bxd5 Bd6 8. h3 Rf6 9. De2 De7 10. Rc3 c6 11. Bb3 Be5 12. Rdl Bd4 + 13. Khl Dxe4 14. Dfl Rh5 15. d3 De5 16. c3 Bb6 17. Bxf4 RxB 18. HxR Be6 19. d4 Dg7 20. Re3 Rd7 21. Rf5 Df8 22. Hel 0-0-0 23. BxBe6 fxB 24. Hxe6 Kb8 25. Rd6 Dg8 26. Rf7 Bc7 27. RxHd8 Dg3 28. Rf7 BxHf4 29. Dgl Hf8 30. He7 Kc8 31. c4 Dg8 32. Del Dg3 33. DxD BxD 34. c5 a5 35. b3 h5 36. Kgl b6 37. cxb6 Rxb6 38. a3 Rd5 39. Ha7 Rc7 40. Re5 Hf2 41. Hxa5 Rd5 42. Hc5 Rf4 og hvítur gaf. Þorvaldur Jónsson, læknir. með 8 vinninga af 10, Kristinn 6V2, Sigurgeir og Jón 5 vinninga hvor. Nú kemur annað heimsstríð og liggur starfsemi félagsins í dái allt fram til ársins 1945. Þá er félagið endurreist á fjölmennum fundi og þessir menn kosnir í stjórn: Lárus Hermannsson, for- maður; Rögnvaldur Jónsson, vara- formaður; Guðmundur Ludvigs- son, ritari og Jón Á. Jóhannsson til vara; Sigurgeir Sigurðsson, gjaldkeri og Jón Jónsson frá Hvanná til vara; Endurskoðendur þeir Sigurður Ásgeirsson og Magn- ús B. Magnússon, en til vara Gústaf Lárusson og Jóhannes Þorsteinsson. Hefur félagið starf- að óslitið síðan og félagsmönnum farið fjölgandi. Eru þeir nú 50 talsins. Árið 1950 var ákveðið að skipta félagsmönnum í tvo flokka eftir skákstyrkleika, og síðar var bætt við þriðja flokknum, ung- lingaflokki. Flutti félagið um svip- að leyti starfsemi sína í sal bóka- safnsins, þar sem það hefur síðan haft aðalbækistöðvar sínar. Til viðbótar við undangengina nafnaupptalningu þykir rétt að geta hér nokkurra manna að lok- um, sem unnið hafa félaginu vel nú á hinum seinni árum. Guð- bjarni Þorvaldsson var formaður félagsins árin 1947 og 1948 og auk þess lengi í stjórn. Stígur Herlufsen var formaður 1953 og skákmeistari félagsins 1954. Ósk- ar Brynjólfsson var formaður 1955 og 1956 og hefur lengi verið og er enn einn af virkustu skák- mönnum félagsins. Gísli Kristjáns- son var sjö sinnum skákmeistari á árunum 1950—1958 og er enn einn sá sterkasti. Magnús Kristins- son hefur verið virðulegur stjórn- armeðlimur síðan 1957, skákmeist- ari 1959 og 1960. Núvenandi skák- meistari er Magnús Alexanders- son, bikarmeistari Birgir Valdi- marsson, hraðskákmeistari Magn- ús Aspelund, drengjameistari Pét- ur Gunnlaugsson. Formaður fé- lagsins er nú Einar S. Einarsson. e.

x

Vesturland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vesturland
https://timarit.is/publication/633

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.