Bjarmi - 01.12.2003, Blaðsíða 8
Hljómar kynna
Frábær jólagjöf!
Mikiö úrval kristilegrar
tónlistar fyrir alla aldurshópa
á www.hljómar.is.
Tónlistin frá Hljómum fæst
einnig í Jötunni, Kirkjuhúsinu,
KFUM og KFUK og Veginum.
HLJÓMAR
Bjarmi óskar
lesendum sínum
gleðilegra jóla
Aðventa bendir og segir: Þetta er framtíðin,
Jesús Kristur er að koma. Ekki bara sem lítið
barn á jólum, hann er að koma á móti veröld-
inni sinni sem frelsari hennar og Drottinn all-
rar framtíðar. Hann og ríki hans er framtíðin.
því stefnt að aö afmá krossinn úr
fána lýöveldisins. Örugglega
kemst þaö á dagskrá ef múslimum
fjölgar til muna í þessu landi.
En svo viö snúum okkur að öðru.
Þú hefur þjónað Drottni lengi og
boriö ábyrgð á öðrum sem gera
slikt hið sama. Hvaða ráð hefur þú
handa þeim, bœði leikum og lœrð-
um, sem vilja halda glóðinni i
þjónustunni i Guðs riki?
Þetta er mikil spurning. Konan
mín hefur stundum vitnað í um-
mæli sem ég skrifaði henni þegar
viö vorum aöskilin sem oftar, ég í
námi úti og hún hér. Þá skrifaði
ég um hættuna af því að veröa
prestur. Og ekki síður hættuna viö
það aö veröa prestskona. Þaö er
hættulegt að vera í sífellu í
námunda við hið heilaga án þess
aö helgast sjálfur, sagöi ég þá. Ég
kynntist ungur þýskri bók, sem ég
á því miður ekki, en hún hét Kann
auch ein Pastorselig werden? Eða
„Ætli prestur geti líka orðið hólp-
inn?" Þetta er spurning sem ætti
að vera áleitin við okkur öll sem
göngumst undir þessa köllun.
Ég trúi á fyrirgefningu synd-
anna. An þeirrar trúar hefði ég
aldrei getað verið prestur. Það er
auðvitaö enginn svæfill til að gera
mann væran á hverju sem gengur.
Við getum ekki trúað á fýrirgefn-
ingu syndanna eins og það sé
sjálfsagður hlutur, því að fyrirgefn-
ing syndanna byggist á því sem
Kristur krossfestur hefur á sig lagt
og gert. Og ég hef einhvern tímann
sagt við Guð í einum sálma minna:
„Þú berð þinn kross og bætir allt
og brosirgegnum tár." Hallgrímur
segir: „Ófullkomnleika allan minn
umbætti guðdómskraftur þinn." Ég
geri þessa játningu að minni. En
ef leitað er eftir einhverju áþreif-
anlegu, eða einhverri forskrift í
sambandi við þetta, þá þekki ég
ekki annað ráð en hið gamalkunna
og margreynda aö „vaka og biðja",
næra sig á Guös orði, nota þann
lykil að Drottins náð sem bænin er.
Við þurfum stöðugt að biðja:
„Drottinn, tak ekki þinn heilaga
anda frá mér," eins og segir í
sálmi Davíðs. Ég get trúað þér fyr-
ir því að ég fór ævinlega með
Sálm 51 í huganum er ég fór fyrir
altarið. Hann hefur verið mér dýr-
mætur förunautur í þjónustunni.
Nú nálgast aðventan og sjálfur
ertu kominn vel á efri ár. Þú hlýtur
að hafa hugsað um það sem tekur
við, hugsað um himininn? Hvernig
er hann og hvað tekur við?
Já, þetta er eölileg spurning.
Nú nálgast aðventa og við höld-
um aðventu nákvæmlega af því
að við höfum fengið svar við
þessu. Aðventa bendir og segir:
Þetta er framtíðin, Jesús Kristur
er aö koma. Ekki bara sem lítiö
barn á jólum, hann er aö koma á
móti veröldinni sinni sem frelsari
hennar og Drottinn allrar framtíð-
ar. Hann og ríki hans er framtíðin.
Þar með er því svaraö hvernig
himinninn er. Himinninn og eilífa
lífið er þar sem Jesús Kristur er
allt í öllu, ásamt Guði föður og
heilögum anda, að eilífu.
Aö öðru leyti veit ég álíka lítið
um himininn eins og ég vissi litið
um jörðina þegar ég var í móðurlífi
og ég er fullkomnlega sáttur við
það. Þaö sem ég veit nægir mér.
Við látum hér staöar numið.
Heimsóknin var blessuð og notaleg.
Sigurbjörn og Magnea hafa þjónað
Drottni sínum og frelsara í áratugi.
Þau hafa unnið íslenskri kristni
ómælt gagn og verið farvegur náð-
ar og kærleika Guðs til margra. Ég
bið þeim Guðs blessunar um leið
og ég kveö og þakka fyrir mig og
fyrir þig, lesandi góöur.
Viðmælandi Sigurbjörns er ritstjóri
Bjarma, kristniboði og skólaprestur.
ragnar@sik.is
8