Búnaðarrit - 01.01.1957, Blaðsíða 209
BÚNAÐARRIT
205
kvæmi hans eru ekki nógu þéttvaxin og jafnvaxin.
Bændur í Suðureyrarhreppi hafa nú stofnað sauð-
fjárræktarfélag. Vonandi verður starfsemi þess til
el'lingar sauðfjárræktinni í hreppnum.
Flateyrarhreppur. Þar voru sýndir 13 hrútar, flestir
lélegir, enda vógu þeir fullorðnu, 7 að tölu, aðeins
80.9 kg og þeir veturgömlu 67.8 kg og voru því mun
léttari til jafnaðar en í nokkrum öðrum hreppi í
sýslunni, sjá töflu 1. Aðcins einn hrútur lilaut I.
verðlaun, Fífill Mikaels í Fremri-Breiðadal, frá Stur-
laugi frá Múla í Nauteyrarhreppi. Fífill er góð kind,
en ekki mjög þungur, enda líklega nokkuð farinn að
rýrna vegna aldurs, Fjáreigendur í Flateyrarhreppi
þurfa að fá sér betri hrúta en þá, sem þeir eiga nú,
til þess að nokkur von sé til þess, að fé þeirra hatni.
Mosvallahreppur. Þar var fremur vcl sótt sýning.
AIls voru sýndir 43 hrútar, 30 fullorðnir, scm vógu
91.6 kg, og 13 veturgamlir, sem vógu 77.7 kg til jafn-
aðar. Þeir fullorðnu voru því svipaðir að vænleika, en
þeir veturgömlu nokkru þyngri en jafnaldrar þeirra
í sýslunni i heild. Fyrstu verðlaun lilutu 10 hrútar
fullorðnir, er vógu að meðaltali 95.5 kg og 3 vetur-
garnlir, sem vógu 79.0 kg til jafnaðar. Engin verð-
laun hlutu 7 hrútar. Beztu þriggja vetra hrútarnir
í lækltandi röð voru þessir: Skutull í Hjarðardal frá
Tungu í Eyrarhreppi, sonur Fífils þar, vænn, vel
gerður og holdmikill einstaklingur, Hnifill Bjarg-
mundar á Kirkjubóli í Valþjófsdal og feðgarnir, Múli
og Heiðar, Ragnars í Dalshúsum. Múli er 1‘rá Stur-
laugi í Múla við Isafjörð. Hann er prýðilcga gerður,
lágfættur og þungur og er í hópi betri hrútanna frá
Múla. Heiðar, sonur hans, er mjög álitlegur, en að-
eins grófbyggðari en faðirinn. Bezti tvævetlingurinn
Var Kollur Bjargmundar á Kirkjubóli, þar heimaal-
inn, sonur Hnífils gamla. Kollur er frábær einstak-
lingur að vaxtarlagi og holdafari. Næslir honum stóðu