Búnaðarrit - 01.01.1961, Page 40
38
BÚNAÐARRIT
árs 1959. Góður maður og gegn, sem unnið hafði
ágæt störf. í hans stað var Baldvin Jónsson, hæsta-
réttarmálaflutningsmaður, skipaður formaður
bankaráðsins. Aðrir bankaráðsmenn eru Einar
Olgeirsson, alþm., Guðmundur R. Oddsson, fram-
kvæmdastjóri og Birgir Kjaran, alþm.
3. Náttúruverndarráð. í nýlega samþykktum lögum
frá Alþingi er svo ákveðið, að stofnað skuli
náttúruverndarráð, er umsjón skuli hafa með
því, að fögur og sérkennileg náttúrufyrirbæri
séu ekki eyðilögð. Ráðið skal og hafa vald til
þess, undir yfirstjórn mennlamálaráðuneytisins,
að hindra að svo fari ekki. Náttúruverndarráð er
skipað fulltrúum frá ýmsum stofnunum, er ein-
hver afskipti hafa af slíkum málum. Mennta-
málaráðuneytið skipaði Ásgeir Pétursson, deild-
arstjóra í menntamálaráðuneytinu, formann ráðs-
ins. Aðrir ráðsmenn eru: Náttúrufræðingarnir
dr. Finnur Guðmundsson, dr. Sigurður Þórarins-
son og Ingólfur Davíðsson, tilnefndir af Náttúru-
gripasafninu, Hákon Bjarnason, skógræktarstjóri,
tilnefndur af Skógrækt ríkisins, Sigurður Thor-
oddsen, verkfræðingur, tilnefndur af Verkfræð-
ingafélagi íslands, og Steingrímur Steinþórsson,
búnaðarmálastjóri, tiinefndur af stjórn Búnaðar-
félags fslands. Ráð þetta hafði nokkra fundi s. 1.
ár og hefur hafizt handa um ýmis störf, eftir því
sem lögin mæla fyrir.
4. Útgáfunefnd Freijs. í henni hef ég átt sæti fyrir
stjórn Búnaðarfélagsins, ásamt Pálma Einarssyni,
landnámsstjóra. Þriðji nefndarmaður er Einar
bóndi Ólafsson í Lækjarhvammi, sem er þar full-
trúi Stéttarsambands hænda.
5. Dýraverndunarnefnd. Samkvæmt lögum um dýra-
vernd frá síðasta Alþingi skipaði menntamála-
ráðuneytið nefnd, er kölluð er dýraverndunar-