Búnaðarrit - 01.01.1961, Page 91
BÚNAÐARRIT
89
hinar beztu þakkir fyrir vinsamlega fyrirgreiðslu og
fyrirhöfn.
Lagt var upp í ferðalagið 2. júlí og haldið til
Noregs. Næstu tvo daga ferðuðumst við um Jaðarinn
undir leiðsögn Árna G. Eylands, sendiráðunautar, og
í fylgd með S. Trodahl, fylkisráðunaut. Hinn 5. júlí
var flogið til London og haldið þaðan daginn eftir að
loknum erindum þar til Cambridge á landbúnaðar-
sýningu Ivonunglega enska landbúnaðarfélagsins, sem
haldin var þar að þessu sinni. Frá Cambridge fórum
við til Hereford, heimsóttum Rosemaund tilrauna-
búið, sem rekið er á vegum leiðbeiningaþjónustu
landbúnaðarráðuneytisins (N.A.A.S.), og skoðuðum
undir leiðsögn Mr. Carls Jenkins, búfjárrælctarráðu-
nautar, nokkur bú, sem framleiða og rækta Hereford
nautgripi. Þaðan héldum við til Skottands, fyrst til
Aberdeen, en síðan til Edinborgar. Við skoðuðum
Rowett tilraunastöðina i nágrenni Aberdeen og ferð-
uðumst með Mr. Allan, ráðunaut, á nokkra bæi í
grenndinni, þar sem nautgripir voru framleiddir aðal-
lega til slátrunar. 1 Edinborg var farið á Gorgie mark-
aðinn, þar sem uppboð sláturgripa fór fram, skoðað
sláturhús kjötsamsölunnar og rætt við sérfræðinga
hjá Animal Breeding Research Organization, sem er
rannsóknarstofnun í kynbótum búfjár. Frá Edinborg
var víða farið næstu daga og slcoðuð bú, þar sem
Aberdeen Angus, Galloway og Stutthyrningar af
boldakyni, voru ýmist hreinræktaðir eða blendingar
af þessum kynjum framleiddir til slátrunar. Að lokn-
um störfum nefndarinnar í Bretlandi hélt hún til
íslands binn 15. júlí, en ég fór suður til Reading, þar
sem ég sat síðari hluta 8. alþjóðlegu ráðstefnunnar í
grasrækt, sem lauk 21. júlí.
Hlutverk mitt í förinni til Bretlands með nefnd-
inni var að annast fararstjórn og túlkun og leitast
við að sjá um, að nefndin gæti á skömmum tíma