Búnaðarrit - 01.01.1961, Page 280
278
BÚNAÐARRIT
aðeins þrír hyrndir og virðist því kollótta féð vera
í algjörum meirihluta eftir hrútunum að dæma.
Beztu hrútarnir á sýningunni voru mjög góðir og
örugglega með þeirn beztu í sýslunni. Það verður
skemmtilegt verk fyrir nýstofnað sauðfjárræktarfélag
í sveitinni að vinna að ræktun fjárins og hafa til þess
hrútana, sem efstir stóðu á sýningunni, en það verður
að gæta þess vel að halda aðskildu, kollóttu og hyrndu
fé við ræktunina eins og víðar á Vestfjörðum.
Reykhólahreppur. Þar voru sýndir 45 hrútar, allir
úr austurhluta sveitarinnar, því að vesturhluli hennar
var sauðlaus eftir fjársldptin á Reykjanesinu 1959.
Hrútarnir voru jafn léttari en í nokkrum öðrum
hreppi í sýslunni. Þeir fullorðnu vógu 89.4 kg og
þeir veturgömlu 74.9 kg að meðaltali. I. verðlaun
hlutu 15 hrútar, en 8 voru dæmdir ónothæfir. Beztu
hrútarnir, 3ja vetra og eldri, voru Fifill Eyjólfs á
Gillastöðum, hyrndur, ágætlega vænn og mjög hold-
mikill. Hörður á Kambi frá Garpsdal, vel gerður, en
hefur þó varla nógu hvelfd rif, Prins á Hafrafelli,
Glanni á Skáldsstöðum, mjög vænn, en nokkuð há-
fættur, Kollur í Bæ, vel gerður en léttur, Hnífill í
Mýrartungu, vænn, allholdgóður, nema í lærum, og
fullháfættur, Dropi á Hríshóli frá Kleifum og Glanni
og Valur á Klukkufelli. Af tvævetlingum voru þessir
beztir: Blakkur á Gillastöðum, afhragðs vel gerður
og holdgróinn, Gylfi á Klukkufelli, Gauti í Hólum,
vænn en nokkuð háfættur og Hnykkur á Hrishóli
frá Klukkufelli. í hreppnum eru nokkrir mjög lcosta-
miklir, hyrndir hrútar, sem enn bera ýmis einkenni
gamla Gotlorpsstofnsins. Sumir þeirra eru þó of grófir
á herðakamb. Þarf að vanda mjög val hrúta af þessum
slofni, til þess að viðhalda honum sem allra beztum,
en láta hann ekki ganga úr sér fyrir aðgæzluleysi.
Geiradalshreppur. Sýndir voru 46 hrútar, 28 full-
orðnir, sem vógu 96.9 kg, og 18 veturgamlir, sem