Búnaðarrit - 01.01.1961, Page 292
290
BÚNAÐARRIT
fullorðnir og 44 veturgamlir. Þeir fullorðnu vógu
96.4 kg eða 5.0 kg meira en hrútar á sama aldri í
sýslunni og 2.4 kg meira en jafnaldrar þeirra fyrir
4 árum. Þeir veturgömlu vógu 79.8 kg eða 5.4 kg
meira en hrútar á sama aldri í sýslunni og 2.1 kg
meira en jafnaldrar þeirra 1956. Fyrstu verðlaun
hlutu 53 hrútar eða 54% sýndra hrúta, en aðeins 2
voru ónothæfir. Margir afbragðs hrútar eru á Skóg-
arströnd. Má þar sérstaklega geta Dvergs á Innra-
Leiti og sona hans. Dvergur var dæmdur bezti hrút-
urinn á héraðssýningunni 1958 og aftur nú. Nú var
hann sýndur með afltvæmum og hlaut I. verðlaun
fyrir þau. Vísast til umsagnar um hann i greinum
um héraðssýninguna og afkvæmasýningar hér í ritinu.
Fjöldi ágætra hrúta eru á Skógarströnd. Skal nokk-
urra þeirra, sem ekki fóru á héraðssýninguna, getið
hér. Af kollóttum veturgömlum hrúturn fóru 2 á
héraðssýninguna. Næstir þeim stóðu: Frosti á Innra-
Leiti, samanrekin holdakind, Móði á Ytra-Leiti, frá
Innra-Leiti, sonur Dvergs, lágfættur, þykkvaxinn og
holdgróinn, Fjalar á Innra-Leiti, sonur Dvergs, fram-
úrskarandi holdakind, en óvenju háfættur af syni
Dvergs að vera, Dropi á Hólmlátri, prúður og jafn-
vaxinn og Kollur á Innra-Leiti, sonur Kolls á Teig-
ingalæk, klettþungur, lágfættur og hefur afbragðs
lærahold. Beztu hyrndu hrútarnir veturgömlu voru
Prúður í Litla-Langadal, sonur Litla á Læk i Árnes-
sýslu, klettþungur og allholdgóður, Hringur á Hólm-
látri frá Stóra-Langadal, sonur Draupnis í Ási í
Hrunamannahreppi, lágfættur, þéttvaxinn, en ekki
nógu holdgróinn á baki, Spakur á Emmubergi, son-
ur Durgs á Fjalli i Árnessýslu, lágfættur og mjög
þungur, en aðeins í slakara lagi í lærum. Durgur á
Innra-Leiti, líka sonur Durgs á Fjalli, klettþungur
og lágfættur og Fríður á Setbergi, sonur Litla á Læk,
þungur, lágfættur, en ekki nógu holdþéttur.