Búnaðarrit - 01.01.1961, Page 293
BÚNAÐARRIT
291
Tveir beztu kollóttu tvævetlingarnir fóru á hér-
aðssýninguna, Prúður á Innra-Leiti og Kollur í Litla-
Langadal, frá Innra-Leiti, báðir synir Dvergs, af-
bragðs kindur. Sá þriðji var Hörður í Stóra-Langa-
dal, sterkbyggður, en háfættur. Bezti hyrndi tvæ-
vetlingurinn, Lassi á Vörðufelli, fór á héraðssýning-
una, en næstir honum stóðu Dropi á Emmubergi, vel
gerður og lioldmikill, Spakur á Setbergi, rígvænn,
bakbreiður, en i háfættara lagi og hefur ekki nógu
þróttlegt höfuð, Draupnir í Stóra-Langadal, sonur
Draupnis í Ási i Hrunamannahreppi, lágfættur, jafn
og holdgóður, Bóli Jóns á Dröngum frá Setbergi,
lágfættur, en varla nógu útlögumikill og ekki nógu
holdgróinn á lærum og Hrammur Gísla á Dröngum,
hraustleikakind.
Einn hyrndur hrútur eldri en 2ja vetra, Nökkvi
á Innra-Leiti, fór á héraðssýninguna. Hann er af-
bragðs kind. Hringur í Haugabrekku og Neisti á
Vörðfelli, sonur Durgs á Fjalli, eru mjög kostamiklir.
Af kollóttum hrútum 3ja vetra og eldri fóru 3 á
héraðssýninguna, Dvergur á Innra-Leiti, Spakur í
Stóra-Langadal og Hrotti Gísla á Dröngum. Af öðr-
um ágætum, kollóttum hrútum á þessum aldri má
nefna Sóma á Hólmlátri,Sóma á Hálsi frá Innra-
Leiti, Vamba á Borgum, Jökul í Litla-Langadal og
Þokka á Setbergi. Þessir hrútar eru allir miklar
kostakindur.
Eins og sést á framanskráðu eru margir af beztu
liyrndu hrútunum á Skógarströnd synir þingeyskra
hrúta, sem notaðir liafa verið á sæðingarstöðinni í
Laugardælum. Er þá sögu að segja úr fleiri sveitum á
Snæfellsnesi. Bendir þetta til ávinnings af blóðblönd-
un þessari.
Helgafellssveit. Þar voru sýndir 64 hrútar, 49 full-
orðnir og 15 veturgamlir. Þeir eru svipaðir að þunga
og jafnaldrar þeirra í hreppnum 1956, en aðeins