Búnaðarrit - 01.01.1961, Page 319
BÚNAÐARRIT
317
ágætt sláturlamb, en fullorðni hrúturinn mjög þétt-
vaxinn og vel byggð I. verðlauna kind. Veturgamli
hrúturinn er einnig I. verðlauna kind, en varla nóga
holdfyllt í lærum. Ullin er fremur g'óð á Litlu-Gránu
og afkvæmum hennar.
Litla-Grána 263 hlaut I. verðlaun fyrir afkvæmi.
C. Kúpukolla 257, eigandi Guðmundur Valgeirsson,
Bæ, er heimaalin. F. Kóngur, M. Kúpa. Kúpukolla er
hvít, kollótt, stultbyggð og holdgóð, hefur verið tví-
lembd utan einu sinni. Dæturnar eru vel byggðar,
lioldgóðar, fríðar og sæmilega frjósamar, hrútlambið
þokkalegt skurðarlamb, fullorni hrúturinn hefur mikil
bakhold, en hefur gallaða fætur.
Kúpukolla 257 hlaut II. verðlaun fyrir afkvæmi.
D. Snotra 284, eign Guðmundar Valgeirssonar, Bæ,
er heimaalin. F. Vörður 10, M. Hjalta-Botna. Snotra
er myndarleg, sterkleg, en fremur grófbyggð. Af-
kvæmin voru öll hvít nema gimbrarlambið svart. Öll
eru þau hyrnd. Snót er ágætlega gerð ær, eldri hrút-
urinn I. verlðauna kind, en vantar þó holdfyllingu,
veturgamli hrúturinn II. verðlauna, stór, en vantar
einnig holdfyllingu einlcum í læri, hrútlambið of liold-
lítið, en gimbrarlambið gott til ásetnings.
Snotra 284 hlaut III. verðlaun fyrir afkvæmi.
Vestur-ísafjarðarsýsla.
Suðureyrarhreppur.
Þar var ein ær sýnd með afkvæmum, sjá töflu 7.
Tafla 7. Al'kvæmi Snarar* X 33 í Botni.
1 2 3 4 5 6
Móðirin : Snör X 33, 7 v. .. 70.0 96.0 75 33 22.0 127
Sonur: Snari, 1 v., I. v. .. 80.0 105.0 82 37 23.0 137
Dætur: 3 ær, 3—5 v 02.7 94.7 74 34 20.0 130
1 gimbrarl., einl. . . 47.0 93.0 - - 19.0 123