Búnaðarrit - 01.01.1961, Qupperneq 362
360
BÚNAÐARRIT
I. verðlaun B hlutu, óraðaðir:
Dóni, 3 v., Þorkels Guðmundssonar, Óspakseyri, Óspakseyrarhr.
Þór, 5 v., sama ciganda.
Grettir, 5. v., Jóns Sigurðssonar, Stóra-Fjarðarhorni, Fellshr.
Narfi, 1 v., Sigurðar Jónssonar, Felli, Fellshr.
Glófi, 2 v., Páls Traustasonar, Grund, Kirkjubólshr.
Itútur, 3 v., Grims Benediktssonar, Kirkjuhóli, Kirkjuhólshr.
Hnífill, 3 v., Ingimundar Ingimundarsonar, Hólmavik.
Þór, 4 v., Finns Jónssonar, Hólmavík.
Hnoðri, 5 v., Magnúsar Guðjónssonar, Ósi, Hrófbergshreppi.
Bassi, 5 v., Arngríms Ingimundarsonar, Odda, Kaldrananeslir.
Þáttur, 5 v., Ingim. Ingimundarsonar, Svanshóli, Kaldrananeshr.
Hrotti, 3 v., sama eiganda.
Sómi, 4 v., Andrés Sigurðsson, Asparvik, Kaldrananeslir.
Garri Sigurðar Jónssonar í Felli var dænidur bezti
hrúturinn á sýningunni. Hann er djásn að gerð, vó
3ja vetra 102 kg og hafði 114 cm brjóstummál, 27
cm bakbreidd og 132 mm fótlegg. Garri er með af-
brigðum jafnvaxinn, þróttlegur, holdgróinn og lýta-
laus. Hann er alhvitur, þó ekki bjartleitur, og hefur
mikla og allgóða u 11. Garri er heimaalinn. F. Hrani
4 í Felli frá Miðhúsum, er hlaut I. verðl. 1952 og
1956, Ff. Goði í Miðhúsum frá Goðdal, er hlaut I.
verðl. 1952, M. Drífa 11 í Felli. Garri er enn lítt reynd-
ur til kynbóta, enda ungur, en binda má miklar vonir
við svo vel gerðan og lýtalausan einstakling, sem
einnig er vel ættaður.
Annar bezti hrúturinn á sýningunni var Oddi Ragn-
heiðar Benjamínsdóttur á Bakka í Kaldrananeshreppi.
Hann er keyptur frá Arngrími í Odda. F. Kolur i
Odda, M. Lina í Odda, FF. Skarði í Odda frá Skarði.
FM. Kola í Skarði, MF. Fínn á Svanshóli, MM. Sjöfn,
MFF. Stebbi á Svanshóli, MFM. Fín á Svanshóli.
Standa að Odda margar afliragðs kindur. Kolur faðir
hans hlaut nú I. verðl. fyrir afkvæmi og voru sýndir
með honum 6 synir lians, sem hlutu I. verðlaun.
Oddi er fagurlega vaxinn og frábær holdalinaus.