Búnaðarrit - 01.01.1961, Page 476
474
BÚNAÐARRIT
Anstiir-Skaftafellssýsla.
Nf. Lónsmanna. Þetta félag hat'ði enn ekki komið á
skýrsluhaldi og sýndi aðeins félagsnautið, Suðra A9
úr Kjalarnesþingi. Vitað er um nokkrar góðar kýr í
sveitinni, sumar aðfengnar. Þar sem mjólkursala er að
hefjast úr Bæjarhreppi, ætti betri samstaða og áhugi
að geta náðst á næstunni um kynbætur í hreppnum.
Nf. Ncsjahrepps. Flestar kýr í einu félagi voru að
þessu sinni sýndar í Nesjum, alls 149. Flokkuðust þær
nú mun betur með tilliti til verðlauna en á síðustu sýn-
ingu, enda voru nú fyrir hendi meiri gögn um afurðir
en þá. 1 félaginu eru margar ágætar kýr og fallegar. Af
þeim, sem sýndar voru, má í því sambandi nefna sum-
ar kýrnar í Akurnesi. Voru þaðan 3 af 6 kúm, sem I.
verðlaun hlutu. Hér að framan hefur verið ritað um
afkvæmasýningu á félagsnautinu Baug A7, sem hlaut
biðdóm varðandi I. verðlaun. Félagið á annað naut,
Hjálm A13, sem hlaut II. verðlaun. Ýmis naut í einka-
eign, misjafnlega valin, eru til lijá félagsmönnum, og
þyrfti að koma betra lagi á nautahald en nú er.
Nf. Mýrahrepps. Af 37 kúm, sem sýndar voru í þessu
litla félagi, voru 16 dætur Hrafns A6, sem hlaut I.
verðlaun og reynzt hei'ur ágætlega, eins og getið er
hér að framan. Hygg ég einsdæmi, að félag með jafn-
litla kúaeign hafi efnt til afkvæmasýningar. Á næstu
sýningu áður var starfsemi félagsins í öldudal, en nú
hafði hún mjög breytzt til hins betra, eins og úrslit
sýningarinnar sýna. Hlutu 3 kýr I. verðlaun. Síðan
nautahald komst aftur í lag í félaginu og tekið hefur
verið fyrir, að nautkálfar gengju lausir í kúnum, ná
kvígurnar meiri þroska, áður en þær bera. Er athyglis-
vert, að hrjóstummál sýndra kúa í heild hafði aukizt
að meðaltali um 10 cm á kú á fjórum árum. Enn eru
lifandi nokkrar dætur Grettis, sem var skyldleika-