Búnaðarrit - 01.01.1961, Síða 481
BÚNAÐARRIT
479
3. Bjai-mi S227, sonur Bjarts S37 og Huppu ö,
Stóru-Mástungum í Gnúpverjahreppi. Sýndar voru 19
dætur Bjarma, allar í Bjóluhverfi. Af þeim voru 8
rauðar og rauðskjöldóttar, 9 brandskjöldóttar, 1 kol-
skjöldótt og 1 svartskjöldótt. Voru nokkrar þeirra
húfóttar. Tvær voru hyrndar, 4 hníflóttar og hinar
13 alkollóttar. Þessar systur hafa geðslegan haus, nokk-
uð þykka húð, lágan spjaldhrygg og útlögur í meðal-
lagi. Sumar þeirra hafa háan krossbeinskamb, og marg-
ar eru fremur bolgrunnar. Húðin á júgri er þykk og
loðin, spenar mislangir og grannir á sumum. Júgrið
fellur vel saman eftir mjaltir, og mjöltun er ágæt.
Fyrir byggingu hlaut þessi systrahópur 75.1 stig að
meðaltali, og brjóstummál var 169 cm.
Að 1. kálfi höfðu 8 dætur Bjanna mjólkað að meðal-
tali 2273 kg með 4.12% mjólkurfitu eða 9365 fe miðað
við 43 vikur, en 4 að öðrum kálfi 3317 kg með 4.01%
mjólkurfitu eða 13301 fe, miðað við sömu tímalengd
frá burði. Af þessu þykir sýnt, að dætur Bjarma hafa
góða mjólkurfitu. Þær mjólka fremur lílið á 1. mjólk-
urskeiði, en þær fóu, sem borið höfðu að 2. kálfi,
mjólka þá vel. Ónóg vitneskja var þó fyrir liendi um
mjólkurafköst systrahópsins til þess, að hægt væri að
hyggja á henni, og hlaut Bjarmi að sinni biðdóm varð-
andi I. verðlauna viðurkenningu.
4. Kolur S228, sonur Tíguls S42 og Dimmu 19, Minni-
Mástungum í Gnúpverjahreppi. Sýndar voru 14 dæt-
ur Kols á afkvæmarannsóknarstöðinni í Laugardælum.
Voru 5 þeirra rauðar og rauðskjöldóttar, 2 hröndóttar,
3 kolóttar og kolskjöldóttar, 1 svartskjöldótt, 1 grá-
skjöldótt og 2 sægráskjöldóttar. Allar voru kollóttar.
Þessar systur hafa fremur langan, sviplítinn liaus, húð
í þykkra lagi á nokkrum, flestar hafa sterkan hrygg og
allmikið rými. Malir eru fremur breiðar, en grófar,
fótstaðan góð, júgur vel lagað og rýmismikið, spenar