Búnaðarrit - 01.06.1963, Síða 75
Hrútasýningar 1962
Eflir Halldór Pálsson og Árna G. Pétursson
Búnaðarfélafj Islands liélt hinar venjulegu lögákveðnu
hrútasýningar liaustið 1962 í Eyjafjarðarsýslu, Skaga-
fjarðarsýslu, Húnavatnssýslum, Mýrasýslu og Borgar-
fjarðarsýslu og í kaupstöðnm á þessu svæði. Allir hrepp-
ar og kaupstaðir í þessum héruðum óskuðu eftir lirúta-
sýningum, nema Grímseyjar- og Hríseyjarhreppur.
Dómarar af liálfu Búnaðarfélags Islands voru þessir:
Egill Bjarnason, ráðunautur Bs. Skagfirðinga, er dæmdi
í Eyjafjarðarsýslu, nema Öxnadal, Svarfaðardal og Dal-
vík, einnig dæmdi hann í Höfðahreppi og Ytri-Torfu-
staðahreppi.
Sigfús Þorsteinsson, ráðunautur Bs. Húnvetninga, er
dæmdi í Skagafirði sunnan Hofshrepps, nema Staðar-,
Rípur- og Skarðshreppi. Dr. Halldór Pálsson dæmdi í
þeim hreppum Eyjafjarðar og Skagafjarðar, þar sem þeir
Egill og Sigfús dæmdu ekki. Ennfremur dæmdi Halldór
í öllum hreppum í Húnavatnssýslum háðum, nema í
Höfða- og Ytri-Torfustaðahreppi. Einnig dæmdi liann
í Stafholtstungna- og Hvítársíðuhreppi í Mýrasýslu og í
Borgarfjarðarsýslu, nema í Andakíls-, Leirár- og Mel«a-,
Skilmanna- og Innra-Akraneshreppi. Aðalhjörn Bene-
diktsson, ráðunautur Bs. Vestur-Húnvetninga, dæmdi í
þeim hreppum Mýra- og Borgarfjarðarsýslu er Halldór
dæmdi ekki í, nema í Andakílshreppi, en þar dæmdi
Grímur Jónsson, ráðunautur Bs. Norður-Þingeyinga. Á
llÚNAÐARRIT
19