Búnaðarrit - 01.01.1974, Page 7
Skýrsla
um störf Búnaðarfélags íslands 1973
Stjórn félagsins
Búnaðarþing kýs stjórn BúnaSarfélags Islands á fjögurra
ára fresti á fyrsta BúnaSarþingi hvers kjörtímabils. SíS-
ast fór stjórnarkjör fram 1971, og þá voru kosnir: Ásgeir
Bjarnason, bóndi og alþingismaSur, ÁsgarSi, sem er for-
ma'Sur félagsins, Einar Ólafsson, fyrrverandi bóndi í
Lækjarbvammi, ritari, og Hjörtur E. Þórarinsson, bóndi,
Tjörn. Varamenn sljórnarinnar voru kosnir: Magnús Sig-
urSsson, bóndi, Gilsbakka, Siggeir Björnsson, bóndi, Holti
og Jón Helgason, bóndi, SeglbúSum. Stjórnin ber ábyrgS
gagnvart BúnaSarþingi á þeim samþykktum og ákvörS-
unum, sem BúnaSarþing gerir á hverjum tíma.
Stjórn félagsins hélt 40 fundi á árinu og bókaSi 287
ályktanir um einstölc erindi og mál á þehn fundum.
Á nokkrum stjórnarfundum mættu varamennirnir, Sig-
geir Björnsson og Jón Helgason, í forföllum þeirra Einars
Ólafssonar og Hjartar E. Þórarinssonar.
EndurskoSendur reikninga BúnaSarfélagsins eru Ingi-
mundur Ásgeirsson, bóndi, Hæli, kosinn af BúnaSarþingi,
og GuSmundur Sigþórsson, stjómarráSsfulltrúi, tilnefnd-
ur af landbúnaSarráSuneytinu.
Starfsmenn og starf sgreinar
Hér verSur starfsfólk BúnaSarfélags Islands taliS upp og
getiS verksviSs hvers og eins. Breytinga á starfsliði félags-
ins á árinu verður getið í eftirfarandi skýrslu. t skýrslum