Búnaðarrit - 01.01.1974, Page 32
26
BÚNAÐARRIT
launin á sjiitugsafmæli Elíasar, en Búnáðarfélag Islands
sendi eftirfarandi bréf með viðurkenningunni:
„Herra bóndi Elías Jónsson,
Rauðabergi, Mýralireppi,
A.-Skaftafellssýslu.
Búnaðarfélag Islands árnar þér allra lieilla á sjötugsaf-
mælinu. Við þennan merka áfanga ævi þinnar liefur Bún.
aðarfélag íslands ákveðið að veita þér viðurkenningu úr
Heiðursverðlaunasjóði félagsins, áletraðan minnispening
úr silfri, sem örlítinn viðurkenningarvott fyrir frábært
starf þitt að sauðfjárrækt.
Þær miklu framfarir í sauðfjárrækt, sem orðið bafa í
þínu beimabéraði og víðar á landinu síðustu áratugi, hefðu
ekki náðst fram nema með liinu mikla félagslega átaki,
sem bændur bafa gert í sauðfjárræktarfélögunum. Þar lief-
ur þú ætíð staðið í fremstu röð og tókst við sem leiðtogi í
þínu béraði að B jama lieitnum Guðmundssyni látnum, en
bans mikla vakningarstarf í sauðfjárrækt verður aldrei
fullþakkað.
Með vinsemd og virðingu,
Halldór Pálsson.“
önnur störf búnaðarmálastjóra
,Ég á sæti í stjórn Vísindasjóðs, kjörinn af Alþingi, í
Rannsóknarráði ríkisins, Skipulagsnefnd fólksflutninga
og í Veiðimálanefnd samkvæmt tilnefningu Búnaðarfé-
lags Islands.
Þá starfa ég að hluta sem sérfræðingur í búfjárrækt við
Rannsóknarstofnun landbúnaðarins. Þar hef ég fyrst og
fremst umsjón með livers konar rannsóknum og tilraun-
um, sem gerðar eru á Hesti. Annar sérfræðingur í bú-
fjárrækt við Rannsóknarstofnun landbúnaðarins, Stefán
Sclieving Tborsteinsson, befur nú tekið að sér, ýmist í
samvinnu við mig eða einn, mikið af tilraunum og rann-
sóknum, sem gerðar eru á Hesti, t. d. sér bann um af-