Búnaðarrit - 01.01.1974, Page 208
202
BÚNAÖARRIT
3. 1 þeim liéruðum, sem ósetin eru liéraðsdýralæknum,
en sinnt frá nærliggjandi héruðum að einhverju leyti,
verði stefnt að því, að dýralæknir fari um þau liéruð
minnst mánaðarlega eða oftar og verði slíkur ferða-
kostnaður greiddur niður um 75%.
GreinargerS:
Það er alkunna, að bændur víða um land búa við mjög
ólíka aðstöðu með tilliti til dýralæknaþjónustu. Margir
bændur húa svo langt frá heimili dýralæknis, að fjár-
liagslega getur það verið mjög tvísýnt að notfæra sér
læknisþjónustu öðruvísi en í síma að öllum jafnaði. Gott
dæmi um miklar vegalengdir innan skipaðra dýralæknis-
umdæma er t. d. á Norð-austurlandi. Þar situr dýralækn-
ir á Þórshöfn. Yegalengd til Vopnafjarðar er 79 km og til
Kópaskers 125 km að vetrarlagi — aðeins styttra að sum-
arlagi. Annað dæmi má nefna af Vestfjörðum. Þar situr
liéraðsdýralæknir á Isafirði. Hann sinnir einnig að nokkru
næsta læknishéraði, því að enginn dýralæknir situr á Pal-
reksfirði. Þarna er um geysilegar vegalengdir að ræða, en
þó er annað enn verra, háar lieiöar milli f jarða og héraða,
sem eru lokaðar venjulegum bifreiðum 7—8 mánuði árs-
ins. 1 fjórum hreppum Norður-lsafjarðarsýslu, Inndjúpi,
er engin samgöngxdeið frá ísafirði nema á sjó eða lofti.
Hér eru aðeins nefnd tvö dæmi, sem sýna landfræðilega
erfiðleika í strjálhýli vissra héraða, þar sem læknisþjón-
usta lilýtur að verða mjög dýr, þótt komið sé nokkuð á
móti af ríkisins hálfu til að létta byrðar þeirra, sem þar
húa. Það er einsætt, að sjálfsagt er að reyna að veita þeim
læknislijálp á viðráðanlegu verði, sem búa í þeim liéruð-
um, sem enn eru ósetin Iiéraðsdýralæknum.
Mál nr. 29
Erindi Snœþórs Sigurbjörnssonar o. fl. um laun hérdSs-
ráSunauta og frjótœkna.