Búnaðarrit - 01.01.1945, Side 232
228
BÚNftÐARRIT
og mikla ull. Brjóstummál Kára, 110 cm, er óvenjulega
gott á veturgömluin hrút, en spjaldhryggurinn tæplega
nógu hreiður og holdmikill.
Skeiðahrútarnir voru margir kostamiklir og mjög
vænir.
I Hraungerðishreppi hafa oft verið ágætir hrútar, og
svo var enn. Beztur þeirra allra var talinn Hjálmur
Gísla Jónssonar á Stóru-Réykjum. Hann er frá Hjálm-
holti, sonur Kolls þar, sem ættaður var frá Núpstúni og
hlaut I. verðlaun haustið 1939.
Nokkrir bændur í Hraungerðishreppi gáfu útskorinn
skjöld með hrútsmynd á eftir Ríkarð Jónsson. Skyldi
bezti hrúturinn á hverri hrútasýningu í hreppnum
hljóta skjöldinn sem heiðursverðlaun og eigandi þess
hrúts varðveita skjöldinn til næstu sýningar. Hjálmur
hlaut heiðursverðlaunin, og varðveitir því Gísli Jónsson
Stóru-Reykjum skjöldinn næstu 4 árin. — Gefendur
skjaldarins ákváðu, að lýsing ásamt ætterni og uppruna
þeirra hrúta, er heiðursverðlaunin hljóta, og hver var
eigandi þeirra, skyldi fært í sérstaka bók, er varðveit-
ast skyldi um ókomin ár. Hér fylgdu bændur í Hraun-
gerðishreppi hinu góða l'ordæmi Hrafnkelsstaðabænda,
sem áður liefur verið getið. Er þetta fréttist, ákváðu
bændur i Laugardal einnig að gefa grip til heiðurs-
verðlauna á liezla hrútinn þar í sveit. Hlaut Prúður
Teits i Eyvindartungu heiðursverðlaun þar. Ég vona,
að fleiri fylgi þessum góðu fordæmum. Eykur þetta
heilbrigðan metnað fjárræktarmanna og gerir sýning-
arnar skennntilegri og áhrifameiri.
1 Gaulverjabæjarhreppi voru sýndir nokkrir injög
góðir hrútar. Þeir beztu voru af Kleifakyninu frá Núps-
túni. Bezti hrúturinn í þessum hreppi var Bensi Hall-
dórs Bjarnasonar, Króki. Bensi er frá Tungu, sonur
Högna, er hlaut I. verðlaun 1939, en Högni var sonur
Núps frá Núpstúni, er hlaut I. verðlaun í Gaulverja-
bæjarhreppi 1939, þá eign Lofts á Hellum.