Heilbrigðismál - 01.04.1969, Síða 15
hvort sem það reyndi eins mikið á sig og það gat
eða fór sér hægt, hvort sem það var kappklætt
eða ekki og hvort sem vatnið kringum það var sett
á hreyfingu eða látið vera kyrrt. Aðalástæðan fyrir
þessu var sú, að áreynslan jók stórum blóðstrauminn
til vöðvanna, sem mest reyndi á og þannig tapaðist
innri hiti líkamans út í vatnið. Eina undantekningin
frá þessari reglu var , ef vatnskælingin stóð stutt,
10 mínútur eða skemur. Þá varð það hæfileg á-
reynzla til þess að halda líkamshitanum við líði.
Þessi stutti áreynzlutími breytti þó litlu fyrir þá,
sem þurftu að bíða björgunar lengur í köldu vatni
og virðist þannig standa óhaggað, að líkurnar fyrir
að halda lífi, verða meiri ef haldið er kyrru fyrir í
stað þess að synda og brjótast um. Þetta er þveröf-
ugt við það, sem flestir álykta, sem vita, að á-
reynzla heldur líkamshitanum við í andrúmsloftinu.
Eykur líkurnar fyrir að lifa.
Klæðnaður reyndist hafa geysilega þýðingu til
viðhalds líkamshitanum í vatni, þó að fötin væru
gegnblaut og einangrunarhæfni þeirra, sem byggist
aðallega á innbyrgðu lofti, væri þar með nær alveg
úr sögunni. Þetta er líka í mótsögn við þá almennu
skoðun, að fólk eigi að fara úr fötunum áður en
það fer fyrir borð, svo þau verði ekki til hindrunar í
sjónum. Mikill klæðnaður seinkaði kælingarhrað-
anum um 34 meðan á vatnskæingunni stóð og ætti
því að auka stórum líkurnar fyrir því, að fólkið
haldi lífi. Annar þýðingarmikill þáttur, sem enginn
getur þó haft skyndilega áhrif á, er líkamsfitan. Hún
seinkar mjög kælingunni. Þetta hefur lengi verið
lýðum ljóst, og það er talið, að þeir sem hafa lokið
sundi yfir Ermasund, hafi einungis getað það og
lifað það af vegna þess, hvað þeir hafa verið feitir
og vel smurðir með fitu. Áhrif fitunnar eru feikna-
mikil. Magur maður getur dáið tiltölulega fljótt úr
kulda í 25° heitu vatni, en feitur maður getur lifað
tímum saman, þó það sé allt niður í 12° á Celsius.
Flestu fólki finnst erfitt að hafa áhrif á líkams-
þunga sinn á hvorn veginn sem er. En við þau störf,
sem menn iðka berir í köldu vatni, er sjálfsagt að
velja þá feitu en hafna þeim mögru. Það er nær
ekkert hægt að segja offitunni til bóta, en það kann
FRÉTTABRÉF UM HEILBRIGÐISMÁL
að gleðja einhverja, að í einu tilviki skuli hún þó
vera ávinningur.
Meðferð og björgun.
Meðferð á fólki, sem hefur orðið fyrir vatnskæl-
igu liggur að miklu leyti í augum uppi. Að bjarga
því upp úr sjónum eða vatninu og hita það eins
fljótt og hægt er. En fólkið gerir sér yfirleitt ekki
grein fyrir því, að það getur ráðið úrslitum lífs og
dauða, hvort það kemst undireins í baðið (innan 10
mín.) sé það orðið alvarlega kælt. Það má einskis
láta ófreistað til að hafa heitt bað tilbúið örfáum
mínútum eftir björgun, þar sem það er eina leiðin
til að hita húð sjúklingsins fljótt. Það er fjöldi
sannana fyrir því, að sé þetta ekki gert, heldur innri
hiti líkamans áfram, frá miðsvæðum hans út til húð-
arinnar og getur orsakað dauða vegna þess að lík-
amshitinn var þegar fallinn að ýtrustu hættumörk-
um. Heitt bað er vitanlega ekki alltaf tilbúið á
stundinni, og þá er ekkert annað að gera, en færa
sjúklinginn úr blautu fötunum og vefja hann í
teppi, til þess að hindra frekara hitatap. Það er ör-
lítil hætta á því, að vísu mjög lítil, að blóðþrýst-
ingur sjúklingsins geti fallið alvarlega meðan á
endurhituninni stendur og því þyrfti sá, sem ber
ábyrgð á sjúklingnum að hafa aðstæður til þess
að mæla blóðþrýstinginn á nokkurra mínútna fresti
og vera viðbúinn að leggja höfuð sjúklingsins lágt,
ef hann lækkar skyndilega. Það á að forðast aðgerðir
eins og að nudda húðina, vegna þess að það gefur
sjúklingnum lítinn hita, en getur jafnvel gert illt
með því að auka blóðstreymi til húðarinnar frá mið-
svæðum líkamans.
Upprifjun þýðingarmikilla atriða.
Áður en farið er í vatnið eða sjóinn á að klæðast
hlýjum fötum og björgunarvesti. Haldið kyrru fyrir,
nema þér séuð viss um að þér náið landi eða björg-
unarbátnum á sundi. Þegar að björguninni lokinni;
heitt bað, sé það ekki tiltækilegt, þurr hlý föt eða
teppi. Athuga blóðþrýstinginn með stuttu milli-
bili sé þess nokkur kostur.
(Tímaritið HEALTH.)
Bj. Bj. þýddi.
15