Heilbrigðismál - 01.06.1981, Page 25
KRABBAMEIXSFÉLAG ÍSLAXDS 30ÁRA
Verkefni Krabba-
meinsfélagsins
Grein eftir
dr. Gunnlaug Snœdal
Nú er liðið á fjórða áratug síðan
krabbameinssamtökin skutu rótum
hér á landi. Það var lán þessara
samtaka að í upphafi völdust
áhugasamir, bjartsýnir og duglegir
menn til forystu, enda voru verk-
efnin næg. Þá ríkti enn vonleysi og
hræðsla við krabbamein sem sjúk-
dóm og þurfti því ekki síst á bjart-
sýni að halda til að snúa við blað-
inu og hefja sókn gegn krabba-
meini. Það yrði of langt mál að telja
upp allt það sem gert hefur verið en
rétt er þó að rifja upp nokkur atriði.
Mörgunt þótti það undarlegt
þegar Krabbameinsfélagið tók upp
skipulegar læknisskoðanir á „heil-
brigðu fólki“. Það var árið 1957
sem Leitarstöð-A var komið á fót.
Hún var starfrækt sem almenn
leitarstöð fyrir krabbamein hjá
fólki sem hafði engin einkenni um
sjúkdóminn. Frumurannsóknir
hófust þá um leið enda varð sú
rannsóknaraðferð meðal annars til
þess að ýta leitarstarfi úr vör. Þó að
nokkur krabbamein hafi fundist og
auk þess fjöldinn allur af alls konar
kvillum, sem nauðsynlegt var að
kærnu til læknisaðgerða, þá sá fé-
lagið sér ekki fært að reka þessa
almennu leitarstöð lengur en til
1972, þar eð afköst við slíka al-
menna leit þóttu of lítil. Um skeið
var starfrækt einnig Leitarstöð-C,
sem hafði það verkefni að rannsaka
nánar þá sem komið höfðu til
rannsóknar í Leitarstöð-A, en voru
með sýrulausan maga. Var þá ein-
göngu leitað að magakrabbameini.
Árið 1964 var farið að leita
skipulega að krabbameini í leghálsi
og forstigum þess og var stöðin
nefnd Leitarstöð-B. Síðan 1974
hefur leit að brjóstakrabbameini
verið fastur þáttur í þessum hóp-
skoðunum. Árangurinn sem náðst
hefur í baráttunni við krabbamein í
leghálsi hefur vakið athygli víða og
má raunar mæla hann í tugum
mannslífa sem bjargað hefur verið.
Varðandi brjóstakrabbamein verð-
um við að leita nýrra leiða til að ná
betri árangri en þó ber ekki að
vanmeta það sem áunnist hefur.
Núverandi leitarstarf beinist að
tilteknum krabbameinum hjá kon-
um en nýlega ákvað stjórn
Krabbameinsfélags íslands að
skipa nefnd lækna til að leggja mat
á það hvort ekki sé orðið tímabært
að hefja aftur rekstur leitarstöðvar
fyrir karlmenn. Er einkum haft í
huga að unnt sé að greina fyrr en
ella krabbamein í blöðruhálskirtli,
endaþarmi og ristli.
KRABBAMEINSFÉLAG
ÍSLANDS
Stofnað 27. júní 1951 __
Aðalfundur kýs
níu manna stjórn
Stjórnin velur þrjá
í framkvæmdanefnd
Framkvæmdastjóri
og yfirlæknar
sjá um reksturinn
Stöðugildi 20-25
23
KRABBA-
MEINS-
FÉLÖG
KRABBA-
MEINS-
FÉLAG
REYKJA-
VÍKUR
LEITARSTÖÐ B
Hópskoðanir kvenna
(legháls og brjóst)
FRUMURANNSÓKNASTOFA
Þjónusta við Leitarstöð B
og aðra aðila
KRABBAMEINSSKRA
Skráning krabbameina
Faraldsfræðirannsóknir
ÝMIS MÁLEFNI
Aðstoð við sjúklinga
Styrkveitingar o. fl.
FRÉTTABRÉF UM
HEILBRIGÐISMÁL
Heilbrigðisfræðsla
FRÆÐSLA
Reykingavarnir
Krabbameinsfræðsla
HAPPDRÆTTI
KRABBAMEINSFÉLAGSINS
Vor og haust
1951 - 27 JLXÍ 1981
Fréttabrél um HEILBRIGÐISMAL 2/1981 25