Heilbrigðismál - 01.09.1984, Blaðsíða 36

Heilbrigðismál - 01.09.1984, Blaðsíða 36
KEMUR OKKUR OLLUM VID I þessu húsi er háö striö gegn skæöum ógnvaldi, krabbameini. Gerö er skipuleg leit aö krabbameini og forstigum þess, aflaö er þekkingar á orsökum og tíöni krabbameina til aö nýta i baráttunni gegn pessum sjúkdómum og miðlaö er fræöstu um krabbamein og krabbameinsvarnir. HÚS ÞJÓÐARINNAR Sagt hefur veriö aö þetta sé húsiö sem þjóöin gaf. Hún gaf Krabbameinsfélaginu þetta hús en einnig sjálfri sér, því aö allt þaö starf sem hér fer fram er unniö í hennar þágu. 1. HÆÐ: Hér er miöstöö fræöslustarfsins og skríf- stofa tímaritsins Heilbrigöismál, almenn af- greiösla (happdrætti, minningarkort, fræösluefni o.fl.) og skrifstofur Krabba- meinsfélags íslands og Krabbameinsfélags Reykjavíkur. Á þessari hæö er einnig aöstaöa fyrir félagasamtök eins og Stóma- samtökín. Samhjálp kvenna og Nýja rödd, fundarherbergi og námskeiöasalur. — STARFSEMI í HÚSINU 2. HÆÐ: Hér er Leitarstööin þar sem leitaö er aö krabbameini í leghálsi og brjóstum kvenna. Áformaö er aö nota brjóstarönt- genmyndun viö krabbameinsleitina þegar á næsta ári en húsrými til þess er á hæö- inni. 3. HÆÐ: Hér er Frumurannsóknastofan og Krabba- meinsskráin, og hér veröur bókasafn. Þegar hafin veröur leit aö krabbameini í ristli eöa öörum líffærum mun hún í upp- hafi fá aöstööu á þessari hæö. Krabbameinsfélagiö mun hagnýta sér tölvutæknina í auknum mæli, bæöi til aö skipuleggja innkallanir og upplýsinga- söfnun, og ekki síöur til rannsókna og úr- vinnslu. Megin tölvubúnaöurinn er á jarð- hæö hússins en útstöövar á öllum hæöum. Bætum stööuna i baráttunni viö krabbameiniö. HEILBRIGÐI OG LÍFSHAMINGJA ER ÖLLUM ÁVINNINGUR KrabbameinsfélagiÖ Skógarhlíö 8 Símar 621414 (skrifstofa) og 621515 (tímapantanir).

x

Heilbrigðismál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.