Heilbrigðismál - 01.09.1984, Blaðsíða 5

Heilbrigðismál - 01.09.1984, Blaðsíða 5
Leit að brjóstakrabbameini til umræðu á Alþingi: Brýnt að gera áætlun um forgangsverkefni Um miðjan október, þegar fjöl- miðlar voru lamaðir af verkföllum, fóru frani athyglisverðar umræður á Alþingi um leit að brjóstakrabba- meini, forvarnir almennt og for- gangsröðun verkefna á sviði heil- brigðismála. Tilefnið var þingsályktunartillaga þriggja þingmanna Kvennalistans þess efnis að Alþingi skori á heil- brigðisráðherra „að tryggja það að komið verði á kerfisbundinni leit að brjóstakrabbameini hjá konum með brjóstamyndatöku (mammografi). Lagt er til að þessi hópskoðun verði hafin eins fljótt og unnt er.“ Guðrún Agnarsdóttir, alþingis- maður mælti fyrir tillögunni og rifj- aði upp ýmsar tölulegar staðreyndir um brjóstakrabbamein. Einnig gat hún um alþjóðlega ráðstefnu sem haldin var hér á landi í vor, en nið- urstaða hennar var sú að með skipu- legum myndatökum af brjóstum mætti búast við verulegri lækkun á dánartíðni af völdum þessa sjúk- dóms. Með því að greina snemma slík mein er unnt að bjóða konunum vægari og árangursríkari meðferð. Þingmaðurinn taldi eðlilegt og sjálf- sagt að reka þessa leitarstarfsemi í tengslum við þá leit að legháls- krabbameini sem þegar fer fram á vegum Krabbameinsfélagsins. „Heilsuvernd nútímans og framtíð- arinnar stefnir sífellt meira frá því að vera dýr viðgerðarþjónusta í þá átt að koma í veg fyrir sjúkdóma með fræðslu og fyrirbyggandi aðgerðum eða að öðrum kosti að greina þá og meðhöndla á byrjunarstigi", sagði Guðrún. Loks benti hún á það sjón- armið íslensks læknis (karlmanns) að ef það væru karlmenn sem hefðu svo banvænan sjúkdóm sem brjósta- krabbamein og vitað væri um rann- sóknaraðferð sem gæti aukið lífslík- ur og líðan sjúklinganna þá væri fyrir löngu búið að hefja slíka starfsemi. Matthías Bjarnason, heilbrigðis- ráðherra, sagðist skilja áhuga flutn- ingsmanna þessarar þingsályktunar- tillögu, en það væri í mörg horn að líta. „Við verðum að velja og hafna, gæta þess að nýta það fjármagn sem fyrir hendi er eins og best verður á kosið.“ Hann sagði að áætlað hefði verið að kostnaður við að mynda brjóst 15 þúsund kvenna á ári væri um 12 milljónir króna. Ráðherrann sagðist telja að þegar komin væri viðunandi aðstaða til hjarta- rannsókna yrðu hjartaskurðlækn- ingar næsta skrefið. Samhliða því sagðist hann leggja mikla áherslu á að hefja á næsta ári framkvæmdir við svonefnda K-byggingu á lóð Landspítalans, þannig að hægt væri að taka hana í notkun innan fjögurra ára. Stuðla yrði að bættri meðferð fyrir krabbameinssjúklinga. Matthí- as sagðist hafa áhuga á aukinni leit að brjóstakrabbameini og sennilega væri svo um alla flokka. Hins vegar yrði „slíkt vart framkvæmanlegt nú með opinberri fjármögnun hér heima einni saman.“ Svavar Gestsson, fyrrverandi heil- brigðisráðherra, sagði að þó að skipuleg leit að brjóstakrabbameini næði hvergi til heillar þjóðar, enn sem komið er, ættu íslendingar að nýta sér kosti fámennisins og hefja slíkar rannsóknir, jafnvel með fjár- hagslegri aðstoð Alþjóða heilbrigð- isstofnunarinnar. Ef þetta dæmi væri reiknað til enda kæmust menn að þeirri niðurstöðu að ekki væri ein- göngu um kostnaðarauka að ræða, heldur líka sparnað varðandi heilbrigðisþjónustuna á síðari og dýrari stigum. Svavar sagðist telja eðlilegt að ár hvert færu fram á Al- þingi umræður um stefnumótun í heilbrigðismálum og gerð áætlun um forgangsverkefni til nokkurra ára. Undir þetta tóku aðrir þingmenn. „Eg held að við eigum að slá skjald- borg um heilsugæsluna og heilsu- verndina“, sagði Svavar. Guðrún Helgadóttir, alþingismað- ur, sagðist vilja taka undir þings- ályktunartillöguna um leit að brjóstakrabbameini. Slík þjónusta krefðist ekki mikilla fjármuna en af henni mætti vænta mikils árangurs. Hún sagðist vera hlynnt fyrir- byggjandi aðgerðum, „þær held ég að séu tvímælalaus sparnaður, á því erenginn vafi“. HEILBRIGÐISMAL 3/1984 5

x

Heilbrigðismál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.