Heilbrigðismál - 01.09.1984, Blaðsíða 27

Heilbrigðismál - 01.09.1984, Blaðsíða 27
Brjóstagjöf virðist orðin vinsælli en áður var, bæði hér á landi og erlendis. Allir eru á einu máli um að slíkt sé af hinu góða. Þessi skemmtilega mynd hér til vinstri er dönsk að uppruna. • Tíu milljónir manna í sjötfu löndum eru með holdsveiki. Einkum verður hennar vart í löndum Af- ríku og Asíu, en einnig i Mið- og Suður-Ameríku. • Enska heilbrigðisfræðslu- ráðið telur að sjónvarps- auglýsingar sem áttu að höfða sérstaklega til ungl- inga hafi hitt í mark. Ein auglýsingin sýndi áhrif reykinga á lungun, önnur var um tengsl reykinga og hjartaáfalls og í þeirri þriðju var á það bent að í sumum tilfellum þyrfti að taka fótlegg af fólki vegna reykinga. Ungt fólk var fengið til að koma fram í auglýsingunum. • Stöðugt fjölgar þeim ríkj- um sem eiga aðild að Al- þjóða heilbrigðismálastofn- uninni (WHO). Á síðustu mánuðum hafa fjögur eyríki bæst í hópinn sem nú telur alls 164 ríki. Nýjustu aðildarríkin eru: St. Vincent og Grenadines á sunnanverðu Karíbahafi, sjálfstætt ríki síðan 1969, íbúar 114 þúsund. Antiqua og Barbuda á Kar- íbahafi, íbúar 74 þúsund. Cook eyjar á Kyrrahafi, áður hluti af Nýja Sjálandi, íbúar 19 þúsund. Kiribati lýðveldið á Kyrra- hafi, áður nefnt Gilberts eyjar, íbúar 52 þúsund. Leikarinn Larry Hagman hefur nýlega lagt bandariska krabbameinsfélaginu lið í baráttunni gegn reykingum. Hann hefur áður tekið eindregna afstöðu gegn reyking- um og fyrir rétti þeirra sem reykja ekki. Stefnt að reykleysi vestanhafs Bandaríski landlæknir- inn, C. Everett Koop, hefur skorað á félagasamtök að taka þátt í baráttunni fyrir reyklausu þjóðfélagi árið 2000, en einkum skal þó stefnt að reyklausri kynslóð unglinga. I nýrri skýrslu, sem land- Iæknirinn gaf út í sumar, kemur fram að 80-90% af dauðsföllum vegna lang- vinnra lungnasjúkdóma megi rekja til reykinga. Koop sagði að lungna- þemba, líkt og lungna- krabbamein væri sjúkdómur sem vart væri til ef sígarettureykingar tíðkuð- ust ekki. Áætlað hefur verið að reykingar kosti 350 þúsund mannslíf árlega í Bandaríkj- unum, 170 þúsund af völd- um kransæðasjúkdóma, 130 þúsund úr krabbameini og 50 þúsund úr langvinnum lungnasjúkdómum. ‘Tm gonna help you break thc clgarette habit with my ‘Larry Hagman Special Stop Smokin’ Wrist Snappin' Red Rubber Band.' Get one free from your American Cancer Society." ? AMERICAN CANCER SOCIETY ERLENT i Japanskt undur? íslendingar og Japanir eiga það sameiginlegt að lifa lengst allra þjóða heims, konurnar í 80 ár og karlarnir í 74 ár. Japanir hafa ekki alltaf staðið jafn- fætis okkur á þessu sviði. Síðasta aldarfjórðunginn hafa þessar tölur hækkað um tæp 5 ár á íslandi en rúm 10 ár í Japan. Að því leyti sem langlífi er mæli- kvarði á heilbrigðisástand gefa þessar tölur til kynna að ástandið hafi batnað meira þar en hér. Fyrir aldarfjórðungi var ungbarnadauðinn í Japan 77 af þúsundi en er nú kom- inn niður í 7 af þúsundi (svipað og hér). Dánartíðni úr hjarta- og æðasjúkdómum hefur verið mun lægri í Japan en á Vest- urlöndum. Árið 1982 var tíðni kransæðaaðgerða í Japan 1 aðgerð á hverja 100.000 íbúa, en 80 í Bandaríkjunum og um 50 á íslandi (allt erlendis). Japanir verja aðeins 5% af þjóðarframleiðslu sinni til heilbrigðismála, en það er allt að helmingi minna en í vestrænum löndum. Getur unga fólkið beðið tjón á heym sinni vegna hávaða frá diskótónlist? Þetta óttast sumir sænskir læknar og em famir að gera tilraunir á kaninum til að rannsaka það. HEILBRIGÐISMAL 3/1984 2 7

x

Heilbrigðismál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.