Heilbrigðismál - 01.09.1984, Blaðsíða 26

Heilbrigðismál - 01.09.1984, Blaðsíða 26
unarfærum. Þar á meðal má telja langvarandi berkjubólgu, lungnaþan og lungnakrabbamein. Aðalskað- valdar í þessu tilliti eru talin vera tjöruefni í reyk, sem mörg hver eru öflugir krabbameinsvaldar, og ýms- ar ertandi og vefjaskemmandi lofttegundir. Lofttegundir þessar auka slímrennsli í berkjur og hefta jafnframt bifhárahreyfingar þannig, að hreinsun efri hluta öndunarfæra er mun síðri en ella. Af ertingu í berkjum og ofanverðum öndun- arfærum leiðir enn fremur hósta og andþrengsli, sem kunna að vera þjakandi hjá sumum reykinga- mönnum. Illkynja sjúkdómar eru yfirleitt tíðari hjá reykingamönnum og ekki aðeins í öndunarfærum, heldur og í öðrum líffærum, svo sem í brisi, blöðru og í vélindi. Talið er, að hér séu að verki krabbameinsvaldar úr tóbaksreyk, er berast inn í líkamann og valda illkynja frumubreytingum í hinum ýmsu líffærum. Tóbaksreykingar hafa veruleg áhrif á umbrot (niðurbrot) lyfja í líkamanum í þá veru að stytta verk- un þeirra og draga úr virkni. Við notkun margra lyfja getur þetta atr- iði skipt verulegu máli. Ef þungaðar konur reykja að marki, má búast við ýmiss konar verkun á barn og móður. Tíðni fóst- urláta og fjöldi andvana fæddra eykst. Meiri líkur eru á fyrirburði en ella. Börnin fæðast minni en venju- lega og líkur eru á því, að þau taki minni framförum á fyrstu vikum og mánuðum eftir fæðingu en börn mæðra er ekki reykja. Börn reyk- Góð heilsa er gæfa hvers manns Faxafell hf sími 51775 ingakvenna verða án efa oft og tíð- um að þola nikótínfráhvarf, og dánartíðni þeirra er meiri en annarra nýbura. Tóbaksreykingar móður virðast þó ekki leiða til alvarlegra fósturskemmda eins og þekkt er eftir alkóhól. Að öllu samanlögðu er því augljóst, að sígarettureykingar eru stórkostlegur bölvaldur. Menn skyldu í þessu sambandi gera sér Ijóst, að meginvanda tó- baksreykinga er að rekja til skað- legra verkana á hjarta, æðar, lungu og nánast öll innri líffæri önnur en miðtaugakerfið. Þrátt fyrir þá stað- reynd, að nikótín er ákaflega vana- bindandi efni, er skaðleg verkun þess á miðtaugakerfið minni háttar mál miðað við skaðsemi tó- baksreykinga á önnur líffæri. Ef stjórnvöld vilja á annað borð leyfa notkun ávanaefnisins nikótíns, vaknar hreinlega sú spurning, hvort ekki væri heppilegra að neyta þess á annan hátt en með því að reykja. Sums staðar er til tuggugúmmí, er inniheldur hæfilegt magn nikótíns miðað við félagslega notkun þess. Þannig losna neytendur við skaðlega verkun á a.m.k. öndunarfæri og sum önnur innri líffæri, sem óhjákvæmi- lega fylgir tóbaksreykingum. Ekki má skiljast við tó- baksreykingar án þess að nefna, að þær menga mjög andrúmsloft. Tó- baksreykingar kunna því að valda nokkru tjóni einnig hjá þeim, sem ekki reykja, en eru návistum við reykingamenn. Því ber að takmarka tóbaksreykingar í almenningsvistum (vinnustöðum, matstofum, af- greiðslusölum, almenningsfarartækj- um o.s.frv.), svo sem auðið er. Dr. Þorkell Jóhannesson er pró- fessor í lyfjafræði við læknadeild Há- skóla íslands. Hann er læknir og sér- fræðingur í lyfjafræði og eiturefna- fræði. Þorkell er forstöðumaður Rannsóknastofu í lyfjafræði og for- maður eiturefnanefndar. Grein þessi er að mestu leyti sam- hljóða kafla úr bókinni „Lyfjafræði miðtaugakerfisins", sem mennta- málaráðuneytið er að gefa út nú í haust. Kaflinn er birtur hér með leyfi ráðuneytisins, en honum hefur verið breytt á stöku stað.

x

Heilbrigðismál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.