Heilbrigðismál - 01.09.1984, Blaðsíða 15
gefist vel. í sérleyfisbifreiðum hefur
verið skylda að hafa „hæfilega mörg
sæti“ fyrir þá sem ekki reykja, en nú
verða þær bifreiðar svo og hópferða-
bifreiðar að vera alveg án tó-
baksreyks.
Flugvélar. Ekki verður leyft að
reykja í innanlandsflugi, en í milli-
landaflugi má leyfa reykingar í hluta
farþegarýmis. Þessar reglur gilda nú
þegar hjá Flugleiðunt hf. og fleiri
íslenskum flugfélögum.
Skip. Setja skal sérreglugerð í
samráði við Siglingamálastofnun rík-
isins um tóbaksreykingar um borð í
skipum. Um skeið hefur það tíðkast
í Akraborg að ákveðnir salir séu
reyklausir.
Eftirlit. Hollustuvernd ríkisins og
Vinnueftirliti ríkisins er falið að hafa
eftirlit með því að framfylgt sé
ákvæðum laganna um takmörkun á
tóbaksreykingum.
Merkingar. Þar sem tóbaks-
reykingar eru óheimilar skal það gef-
ið til kynna með merki eða á annan
greinilegan hátt. Tóbaksvarnanefnd
mun sjá til þess að slík merki verði
gerð og inunu þau verða til af-
greiðslu m.a. hjá Krabbameinsfé-
laginu, Vinnueftirlitinu og heilbrigð-
isnefndum um land allt.
Víða er reyklaust. Þess má geta að
engin ákvæði eru í tóbakslögunum
um takmarkanir á reykingum á fund-
um, ráðstefnum og almennum sam-
komum. í þessu sambandi má hafa í
huga þá hefð sem ríkt hefur í áratugi
að ekki er reykt við guðsþjónustur
né í sýningarsölum kvikmyndahúsa.
Á fundum ýmissa bæjar- og sveitar-
stjórna eru reykingar ekki leyfðar og
ekki tíðkast þær heldur í þingsölum
á Alþingi. Þá mun það vera að fær-
ast í vöxt að í upphafi ráðstefna sé
tekin ákvörðun um að reykja ekki. I
sumar samþykkti aðalfundur Lækna-
félags Islands að framvegis verði
reykingar bannaðar á öllum fundum
og ráðstefnum félagsins. Loks má
minna á að ekki er til siðs að reykja
á bókasöfnum og ekki heldur inni á
sjúkrastofum.
-jrlP.Ö.IP.BI.
HEILBRIGÐISMÁL .3/1984 1 5