Heilbrigðismál - 01.09.1984, Blaðsíða 14

Heilbrigðismál - 01.09.1984, Blaðsíða 14
Hvar má ekki reykja? Frá og með 1. janúar 1985 verða tóbaksreykingar óheimilar í ýmiss konar húsakynnum og farartækjum hér á landi, samkvæmt lögum nr. 74/ 1984 um tóbaksvarnir, en þau voru samþykkt á Alþingi í vor. Reglur þessar um reykingar eru eins og önn- ur ákvæði laganna mjög í samræmi við ítrekuð tilmæli Alþjóða heil- brigðismálastofnunarinnar til ríkis- stjórna þátttökulandanna, en mest var stuðst við finnsku tóbakslögin frá 1977 varðandi takmarkanir á reykingum. Meginhugsunin er sú að þeir sem reykja ekki eigi rétt á að anda að sér lofti sem laust er við hættuleg efni úr tóbaksreyk, enda hafa rannsóknir á áhrifum „óbeinna" reykinga staðfest það að tóbaks- reykur skaðar fleiri en reykinga- mennina eina. Afgreiðslustaðir. í nýju lögunum segir: „Tóbaksreykingar eru óheim- ilar í þeim hluta af húsnæði stofn- ana, fyrirtækja og annarra þar sem almenningur leitar aðgangs í sam- bandi við afgreiðslu eða þjónustu sem þessir aðilar veita.“ Undir þetta falla m.a. hvers konar afgreiðslusalir (t.d. í bönkum, pósthúsum og skrif- stofum), verslanir (þar með taldar „sjoppur"), biðstofur lækna og bankastjóra, rakara- og hárgreiðslu- stofur, lokuð biðskýli strætisvagna, biðsalir á umferðarmiðstöðvum og flugstöðvum, leiktækjasalir o.fl. Einnig mun hér átt við ganga og lyftur sem nota þarf til að komast þangað sem afgreiðsla fer fram eða þjónusta er veitt. Veitingahús. Veitinga- og skemmtistaðir skulu „á hverjum tíma hafa afmarkaðan fjölda veit- ingaborða fyrir gesti sína sem séu sérstaklega merkt að við þau séu tóbaksreykingar bannaðar." Petta ákvæði var ekki í upphaflega frum- varpinu en kom inn í meðförum Al- þingis. Það verður æ algengara er- lendis að veitingahús fari af sjálfs- 5. ííM?Mk “'rTr i I Jk J % I tí 1 dáðum inn á þessa braut og þróunin er sú að reyklausu svæðin stækka. Skólar. Reykingar verða bannað- ar í grunnskólum, dagvistum barna og húsakynnum fyrir félags- og tóm- stundastarf barna og unglinga. I greinargerð með lagafrumvarpinu kemur fram að tilgangurinn er ekki síst að vernda börnin gegn óbeinum reykingum, en jafnframt segir að hér sé um að ræða staði þar sem sérstak- lega æskilegt er að starfsfólk gefi það fordæmi að reykja ekki. Yfirmaður slíkrar stofnunar getur þó leyft reykingar í hluta þess húsnæðis sem er ætlað starfsfólki eingöngu, enda valdi það ekki óþægindum þeim starfsmönnum sem ekki reykja. Barnasamkomur. Ekki er Ieyft að reykja „á opinberum samkomum innanhúss fyrir börn eða unglinga, hafi börn innan 16 ára aldurs aðgang að þeim“. Er þá átt við barna- skemmtanir, barnasýningar í kvik- myndahúsum og leikhúsum, skóla- skemmtanir o.fl. Heilbrigðisstofanir. Meginregla er að reykingar séu ekki leyfðar á heilsugæslustöðvum, þó gera megi undantekningu að því er varðar starfsfólk, líkt og í grunnskólum. „A sjúkrahúsum má einungis leyfa reykingar á tilteknum stöðum þar sem þær eru ekki til óþæginda fyrir þá sem reykja ekki,“ segir í lögun- um. Sennilega verður því að finna staði fyrir sérstök reykherbergi á sjúkrahúsunum. Pess má geta að löggjafinn sá sér ekki fært að banna tóbakssölu í heilbrigðistofnunum, eins og höfundar frumvarpsins höfðu lagt til. Vinnustaðir. í samráði við Vinnu- eftirlit ríkisins skal setja reglur uni tóbaksreykingar á almennum vinnu- stöðum. Lögin segja að þess skuli sérstaklega gætt að þeir sem reykja ekki verði ekki fyrir óþægindum. Bifreiðar. I lögunum segir að tó- baksreykingar séu óheimilar „í far- þegarými almenningsfarartækja sem rekin eru gegn gjaldtöku." Fyrir nokkrum árum voru bannaðar reyk- ingar í leigubílum og viröist það hafa 14 HEILBRIGÐISMAL 3/1984

x

Heilbrigðismál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.